Þykist vita að hún hafi slitið krossband í fjórða sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2022 10:35 Elísa Viðarsdóttir og Sandra Sigurðardóttir huga að Mist Edvardsdóttur eftir að hún meiddist í leik Vals og Slavia Prag í gær. vísir/vilhelm Mist Edvardsdóttur grunar sterklega að hún hafi slitið krossband í hné í leik Vals og Slavia Prag í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Mist ætti að þekkja einkennin enda slitið krossband í þrígang. „
Ég fer í myndatöku í dag eða á morgun en ég þykist nú vita að þetta hafi verið krossbandið,“ sagði Mist í samtali við Vísi í morgun. Hún meiddist eftir um tuttugu mínútna leik í gær og haltraði af velli. Í hennar stað kom Lillý Rut Hlynsdóttir í fyrsta leik sínum í rúmt ár. Mist segist hafa fundið kunnuglegan verk þegar hún meiddist. „Já, eina sem var frábrugðið hinum þremur skiptunum var að þarna var þetta í kontakt. En hreyfingin sem hnéð fór í, ég fann smellinn og allt það sem kemur á eftir var alveg eins. Þetta var full kunnuglegt,“ sagði Mist. Valur tapaði leiknum í gær, 0-1. Seinni leikurinn fer fram í Prag á miðvikudaginn í næstu viku. Valskonur gætu haldið utan sem nýkrýndir Íslandsmeistarar. Ef Valur vinnur Aftureldingu í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna á laugardaginn verður liðið Íslandsmeistari annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum. Mist hefur tekið þátt í öllum sextán leikjum Vals í Bestu deildinni og skorað fjögur mörk. Hún lék einnig þrjá leiki og skoraði tvö mörk í Mjólkurbikarnum sem Valskonur unnu.
Besta deild kvenna Valur Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira