Innlent

„Háðug­­­leg út­reið“ Manchester United endaði með lög­­­reglu­heim­­­sókn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Stuðningsmaðurinn átti erfitt með að sætta sig við stórt tap sinna manna.
Stuðningsmaðurinn átti erfitt með að sætta sig við stórt tap sinna manna. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk um helgina tilkynningu um mann sem hafði misst stjórn á skapi sínu í heimahúsi er hann horfði á fótboltaleik. Lið hans var að tapa stórt en er lögregla kom á staðinn hafði hann náð að róa sig og sætt sig við tapið.

Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru fjölmörg og fjölbreytt um helgina ef marka má færslu á Facebook-síðu embættisins. Einn stuðningsmaður knattspyrnuliðs fékk heimsókn frá lögreglumönnum þegar lið hans var að fá ansi „háðuglega útreið“ eins og það er orðað í færslunni.

Nágrannar mannsins höfðu samband við lögreglu þegar hann hafði misst stjórn á skapi sínu og gaf frá sér mikil óhljóð er hann horfði á leikinn. Þrátt fyrir að nafn liðsins sé ekki nefnt í færslunni má gera ráð fyrir því að maðurinn sé stuðningsmaður Manchester United en þeir töpuðu 4-0 gegn Brentford á laugardaginn.

Nær vonandi að halda ró sinni gegn Liverpool

„Maðurinn var að horfa á leikinn í sjónvarpi og reiddist mjög, með tilheyrandi hljóðum, þegar fór að síga á ógæfuhliðina og mörkunum rigndi í vitlaust mark. Við þetta hringdu nágrannar stuðningsmannsins í lögreglu enda óttuðust þeir hið versta,“ segir í færslunni.

Þegar lögregla kom á staðinn hafði maðurinn róast og vonar lögreglan að hann hafi stjórn á skapi sínu næst þegar illa gengur hjá hans mönnum á vellinum. Það gæti verið stutt í næstu útreið en næsti leikur Man Utd er á mánudaginn eftir viku þar sem þeir mæta sterku liði Liverpool.

Tólf innbrot tilkynnt

Í færslunni kemur einnig fram að tólf innbrot hafi verið tilkynnt til lögreglu um helgina, sex í fyrirtæki og sex í bifreiðar. Þá var lögregla kölluð til í allnokkur skipti vegna þjófnaða í verslunum.

Fimm líkamsárásir voru tilkynntar um helgina, þar af tvær alvarlega. Þá var farið í fjögur útköll vegna heimilisofbeldis. Alls var 21 ökumaður tekinn fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×