Innlent

NATO æfir kafbátahernað við Íslandsstrendur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Eitt herskipa NATO við Sundahöfn í Reykjavík í morgun.
Eitt herskipa NATO við Sundahöfn í Reykjavík í morgun. Vísir/Einar

Herskip frá sex NATO-ríkjum taka þátt í kafbátaleitaræfingu sem fram fer í Norður-Atlantshafi næstu tíu daga. Æfingin fer að mestu leyti fram á hafsvæðinu við Noreg en að hluta til innan þess loftrýmissvæðis sem Ísland annast.

Kafbátaleitaræfingin Dynamic Mongoose fer fram á tveggja ára fresti og hefur verið haldin síðan 2012. Ísland og Noregur skiptast á að vera gistiríki hennar en Noregur gegnir því hlutverki að þessu sinni. Bein þátttaka Íslands í æfingunni er því takmörkuð þetta árið.

Hollenski sjóliðsforinginn Ad van de Sande.Vísir/Einar

Sex skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins hafa þó verið við landið undanfarna daga til að stilla saman strengi fyrir æfinguna og sinna lokaundirbúningi. Skipin, sem eru frá Frakklandi, Þýskalandi, Noregi, Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum, munu halda til æfingasvæðisins í Noregshafi síðar í dag. Æfingin mun standa yfir til 24. júní næstkomandi.

„Markmiðið fyrir þau skip sem ég stjórna er að æfa og verða betri í kafbátahernaði. Nú, þegar svona mörg skip, þyrlur og herþotur eru saman komin þurfum við sem sameinað lið að auka getu okkar og viðbragðshæfni í kafbátaaðgerðum,“ sagði sjóliðsforinginn Ad van de Sande á blaðamannafundi í einu herskipanna í morgun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×