Veður

Úr­koma víða um land í dag

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með vætu af og til um landið sunnanvert í dag.
Reikna má með vætu af og til um landið sunnanvert í dag. Vísir/Vilhelm

Úrkomubakki kemur inn á austanvert landið og færist svo til norðurs og vesturs í dag. Samt sem áður snertir hann Suðurland og sunnanverðan Faxaflóa lítið sem ekkert, en á móti má búast við skúrum á víð og dreif, einkum síðdegis og í kvöld.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að samfara úrkomunni verði hitinn á bilinu fim til tíu stig en gæti farið í fimmtán stig annars.

„Á morgun og föstudag verður áframhaldandi fremur mild austlæg átt. Væta af og til um landið sunnanvert en lengst af þurrt fyrir nyrðra. Einna mest verður úrkoman á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Enda er það frekar regla en undantekning að úrkomusamast verður áveðurs,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. 

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðaustan og austan 5-13 m/s. Rigning suðaustanlands, súld austast og allvíða skúrir suðvestantil seinnipartinn. Annars úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig, en svalara á Vestfjörðum og á Ströndum.

Á föstudag: Austlæg átt, 3-8 m/s, en norðaustan 5-10 á Vestfjörðum. Rigning með köflum sunnantil, en annars stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 5 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum.

Á laugardag: Norðankaldi og víða dálítil væta, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hlýtt á sunnanverðu landinu, en fremur svalt fyrir norðan.

Á sunnudag: Norðlæg átt og dálitlar skúrir norðaustantil og svalt í veðri, en annars yfirleitt bjartviðri og milt að deginum.

Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands og hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×