Appelsínugular viðvaranir þegar óveður gengur yfir landið í dag Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2022 07:27 Nú er vaxandi suðaustanátt og má reikna með stormi eða roki þegar kemur fram á daginn með snjókomu í fyrstu. Veðurstofan Djúp lægð, um 950 millibara, er komin inn á Grænlandshaf og sendir hún óveður yfir landið í dag. Appelsínugular eða gular viðvaranir hafa verið gefnar út um allt land.
Á vef Veðurstofunnar segir að nú sé vaxandi suðaustanátt og má reikna með stormi eða roki þegar kemur fram á daginn með snjókomu í fyrstu. Síðar megi reikna með talsverðri rigningu eða slyddu á láglendi. Hlýnar í veðri, hiti eitt til sex stig síðdegis. Viðvaranir: Höfuðborgarsvæðið: Appelsínugul viðvörun, 25. febrúar 11-17. Suðurland: Gul viðvörun: 25. febrúar 7-11 Appelsínugul viðvörun, 25. febrúar 11-17. Faxaflói: Gul viðvörun: 25. febrúar 8-11 Appelsínugul viðvörun, 25. febrúar 11-17:30. Breiðafjörður: Appelsínugul viðvörun, 25. febrúar 13-18. Vestfirðir: Appelsínugul viðvörun, 25. febrúar 14-19. Strandir og Norðurland vestra Gul viðvörun: 25. febrúar 14-19:30 Norðurland eystra Gul viðvörun: 25. febrúar 15-21 Austurland að Glettingi: Gul viðvörun: 25. febrúar 14-22 Austfirðir Gul viðvörun: 25. febrúar 12-19 Suðausturland Gul viðvörun: 25. febrúar 12-19 „Hvessir einnig um landið norðaustanvert uppúr hádegi og þar má búast við skafrenningi og dálítilli snjókomu, hlýnar upp að frostmarki á þeim slóðum. Þegar suðaustan óveðrið hefur lokið sér af snýst í allhvassa sunnanátt með skúrum eða slydduéljum. Þessi snúningur gerist á mismunandi tímum á mismunandi stöðum á landinu, tökum dæmi um tímasetningar: á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 16 og 17, á Egilsstöðum milli kl. 20 og 21. Á morgun (laugardag) má gera ráð fyrir sunnan og suðvestan strekkingi með éljum nokkuð víða, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Það kólnar og hiti kringum frostmark á morgun. Á sunnudag róast veðrið síðan meira, þá er útlit fyrir suðlæga golu eða kalda með éljum, gæti orðið fallegt vetrarveður milli éljanna. Á Norður- og Austurlandi er ekki gert ráð fyrir úrkomu. Frystir um mestallt land,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira