Lafhræddir Demókratar vilja drífa sig Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2022 07:01 Útlit er fyrir baráttu milli þeirra Joe Biden og Mitch McConnell á næstu mánuðum. AP Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill tilnefna nýjan hæstaréttardómara eins fljótt og auðið er og koma tilnefningu hennar fljótt í gegnum öldungadeildina. Þar á bæ hafa Repúblikanar þegar gefið í skyn að þeir vilji draga ferlið á langinn. Tilkynnt var í vikunni að hæstaréttardómarinn Stephen Breyer muni láta af embætti í júní. Biden hefur heitið því að tilnefnda svarta konu til embættisins í stað Breyer. Þá segist Biden ætla að opinbera hvern hann mun tilnefna fyrir lok febrúar. Staðan í Hæstarétti Bandaríkjanna er á þann veg að sex dómarar voru skipaðir af forsetum Repúblikanaflokksins og þykja íhaldssamir og þrír voru skipaðir af Demókrötum og þykja frjálslyndir. Breyer, sem er 83 ára gamall, var skipaður til Hæstaréttar Bandaríkjanna af Bill Clinton árið 1994. Hann hefur verið undir nokkrum þrýstingi um að stíga til hliðar svo Biden geti skipað nýjan og yngri dómara. Stephen Breyer tilkynnti í vikunni að hann ætlaði að láta af störfum.AP/Andrew Harnik Donald Trump, fyrrverandi forseti, tilnefndi þrjá dómara til Hæstaréttar, eftir að Repúblikanar í öldungadeildinni komu í veg fyrir að Marick Garland, sem Barack Obama, forveri Trumps, tilnefndi til Hæstaréttar á síðasta ári sínu í embætti, yrði staðfestur í embættið. Þá sagði Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, að of stutt væri í kosningar. Rúmir tíu mánuðir voru í forsetakosningar. Í stjórnartíð Trumps tók Hæstiréttur Bandaríkjanna mikla sveiflu til hægri en Trump tilnefndi þrjá unga íhaldsmenn sem komust öll í gegnum öldungadeildina en með mismiklum erfiðleikum. Sú síðasta sem Trump tilnefndi var Amy Coney Barrett. Repúblikanar keyrðu tilnefningu hennar áfram af miklum krafti en frá því hún var tilnefnd og tilnefningin samþykkt af öldungadeildinni liðu einungis 27 daga. Tilnefningin var staðfest þann 27. október 2020, 38 dögum fyrir forsetakosningar. Demókratar óttast að lenda í sambærilegum aðstæðum á nýjan leik. Tilnefningar til Hæstaréttar Bandaríkjanna þurfa að fara í gegnum öldungadeild Bandaríkjaþings en þar er skipting þingmanna 50-50 milli Demókrata- og Repúblikanaflokksins, þar sem Kamala Harris, varaforseti hefur úrslitaatkvæði. Falli öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins skyndilega frá eða veikist gæti staða Demókrata orðið mjög erfið mjög hratt. Til viðbótar við vandræði Demókrata eru nokkrar deilur innan flokksins sem snúa að þingmönnunum Joe Manchin og Kyrsten Sinema. Þau eru íhaldssamari en gengur og gerist í Demókrataflokknum og hafa staðið í vegi mikilvægra frumvarpa fyrir Demókrataflokkinn og Biden. Þessar ástæður, og aðrar, hafa leitt til þess að Demókratar óttast frekari hægri sveiflu í Hæstarétti og hafa margir þrýst á Breyer um að stíga til hliðar. Það virðist hafa skilað tilætluðum árangri. Samkvæmt frétt Washington Post hafa Biden og aðstoðarmenn hans verið að leita að dómara til að tilnefna í minnst mánuð. Kamalla Harris, varaforseti og fyrsta litaða konan til að gegna því embætti, mun hafa mikið um ákvörðunina, samkvæmt Jan Psaki, talskonu Bidens. Sjá einnig: Segja Biden munu standa við loforð um að tilnefna svarta konu Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, ætlar að hafa hraðar hendur. „Öldungadeildin mun halda sanngjarn staðfestingarferli sem mun ganga hratt svo við getum staðfest nýjan dómara til að taka við að Breyer eins fljótt og auðið er,“ sagði hann í yfirlýsingu sem New York Times vitnar í. Forsvarsmenn dómsmálanefndar öldungadeildarinnar eru þegar byrjaðir að undirbúa nefndarfundi um tilnefningu Bidens, samkvæmt frétt Politico. McConnell vill ekki öfgamann Mitch McConnell, ræddi við blaðamenn í Kentucky í vikunni og varaði Biden við því að tilnefnda „öfga-vinstri“ dómara í embættið. Hann gaf í skyn að Biden ætti að tilnefna einhvern sem væri við miðjuna því „þjóðin hefði kosið öldungadeild deildist jafnt milli flokk“. Því sagði McConnell að Biden hefði ekki umboð til að leiða þjóðina til vinstri heldur ætti hann að sameina þjóðina og tilnefnda dómara sem hefði sýnt fram á að hann myndi fylgja bókstaf stjórnarskrár Bandaríkjanna. Hér er vert að taka fram að fimmtíu öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins hafa rúmlega fjörutíu milljónir færri Bandaríkjamenn á bak við sig en öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins. McConnell hét því samt að hann muni meta þann dómara sem Biden tilnefnir af „sanngirni“. Senate Minority Leader Mitch McConnell says he ll give President Biden s SCOTUS nominee a fair look. pic.twitter.com/JQRktKmrzk— The Recount (@therecount) January 27, 2022 Susan Collins, þingkona Repúblikanaflokksins, hefur einnig kallað eftir því að þingmenn taki sér góðan tíma til að skoða hvern þann sem Biden tilnefnir. Hún sagði við blaðamenn í vikunni að staðfestingarferli Amy Coney Barrett hefði gengið of hratt og sagði mikilvægt að vanda til verks. Reglan um aukinn meirihluta gildir ekki Við hefðbundndar kringumstæðu er ekki nóg að vera með meirihluta í öldungadeildinni til að koma málum þar í gegn. Það er vegna sérstakrar reglu um málþóf í öldungadeildinni. Hún kallast reglan um aukinn meirihluta. Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður. Eins og áður segir skiptist deildin jafnt milli flokka, 50-50. Árið 2013 notuðu Repúblikanar þessa reglu til að koma í veg fyrir að Barack Obama gæti tilnefnt alríkisdómara og ýmsa embættismenn í embætti. Það leiddi til þess að Demókratar breyttu reglunum þannig að það þyrfti einungis 51 atkvæði til. Þær breytingar náðu þó ekki til tilnefnininga til Hæstaréttar. Þegar Trump tók við embætti árið 2017 breyttu Repúblikanar fljótt reglunum á nýjan leik svo þær næðu einnig til Hæstaréttar. Þess vegna gátu Demókratar engar varnir veitt þegar Trump tilnefndi þrjá dómara í forsetatíð sinni. Demókratar þurfa því einungis 51 atkvæði til að staðfesta tilnefningu Bidens. Það gæti þó reynst erfitt í framkvæmd og þá sérstaklega vegna áðurnefndra deilna innan flokksins. Hver einasti Demókrati þarf að standa saman til að ná tilnefningunni í gegn, eða flokkurinn þarf að treysta á stuðning frá Repúblikönum. Bandaríkin Joe Biden Hæstiréttur Bandaríkjanna Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. 20. janúar 2022 12:37 Hæstiréttur hlýðir á mál er varðar vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna mun í dag hlýða á málflutning í máli sem varðar annan viðauka stjórnarskrár landsins, þar sem fjallað er um skotvopnaeign. Málið varðar lög í New York, sem takmarka verulega rétt fólks til að bera skotvopn. 3. nóvember 2021 12:32 Dómarar gætu leyft stefnur vegna þungunarrofsbannsins í Texas Íhaldssamir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virtust hallast að því að leyfa heilsugæslustöðvum sem framkvæmda þungunarrof að höfða mál til að fá bann við þungunarrofi í Texas ógilt þegar mál þeirra var tekið fyrir í dag. 1. nóvember 2021 23:26 Þungunarrofsbannið í Texas fær enn að standa Umdeilt þungunarrofsbann í Texas fær áfram að standa þrátt fyrir að það virðist stríða gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að alríkisdómstóll hafnaði kröfu dómsmálaráðuneytisins um að fella það úr gildi tímabundið í gær. 15. október 2021 09:37 Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að fella úr gildi ný lög í Texas sem banna þungunarrof í nær öllum tilfellum. Lögin tóku gildi í gær og kröfðust þá fjöldi samtaka sem berjast fyrir rétti kvenna til þungunarrofs þess að Hæstiréttur landsins myndi fella þau úr gildi. 2. september 2021 07:59 Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði blessun sína yfir strangari reglur um kosningar sem repúblikanar í Arizona samþykktu árið 2016 í dag. Lögin voru talin koma sérstaklega niður á minnihlutahópum sem eru líklegri til þess að kjósa demókrata. 1. júlí 2021 15:36 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Tilkynnt var í vikunni að hæstaréttardómarinn Stephen Breyer muni láta af embætti í júní. Biden hefur heitið því að tilnefnda svarta konu til embættisins í stað Breyer. Þá segist Biden ætla að opinbera hvern hann mun tilnefna fyrir lok febrúar. Staðan í Hæstarétti Bandaríkjanna er á þann veg að sex dómarar voru skipaðir af forsetum Repúblikanaflokksins og þykja íhaldssamir og þrír voru skipaðir af Demókrötum og þykja frjálslyndir. Breyer, sem er 83 ára gamall, var skipaður til Hæstaréttar Bandaríkjanna af Bill Clinton árið 1994. Hann hefur verið undir nokkrum þrýstingi um að stíga til hliðar svo Biden geti skipað nýjan og yngri dómara. Stephen Breyer tilkynnti í vikunni að hann ætlaði að láta af störfum.AP/Andrew Harnik Donald Trump, fyrrverandi forseti, tilnefndi þrjá dómara til Hæstaréttar, eftir að Repúblikanar í öldungadeildinni komu í veg fyrir að Marick Garland, sem Barack Obama, forveri Trumps, tilnefndi til Hæstaréttar á síðasta ári sínu í embætti, yrði staðfestur í embættið. Þá sagði Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, að of stutt væri í kosningar. Rúmir tíu mánuðir voru í forsetakosningar. Í stjórnartíð Trumps tók Hæstiréttur Bandaríkjanna mikla sveiflu til hægri en Trump tilnefndi þrjá unga íhaldsmenn sem komust öll í gegnum öldungadeildina en með mismiklum erfiðleikum. Sú síðasta sem Trump tilnefndi var Amy Coney Barrett. Repúblikanar keyrðu tilnefningu hennar áfram af miklum krafti en frá því hún var tilnefnd og tilnefningin samþykkt af öldungadeildinni liðu einungis 27 daga. Tilnefningin var staðfest þann 27. október 2020, 38 dögum fyrir forsetakosningar. Demókratar óttast að lenda í sambærilegum aðstæðum á nýjan leik. Tilnefningar til Hæstaréttar Bandaríkjanna þurfa að fara í gegnum öldungadeild Bandaríkjaþings en þar er skipting þingmanna 50-50 milli Demókrata- og Repúblikanaflokksins, þar sem Kamala Harris, varaforseti hefur úrslitaatkvæði. Falli öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins skyndilega frá eða veikist gæti staða Demókrata orðið mjög erfið mjög hratt. Til viðbótar við vandræði Demókrata eru nokkrar deilur innan flokksins sem snúa að þingmönnunum Joe Manchin og Kyrsten Sinema. Þau eru íhaldssamari en gengur og gerist í Demókrataflokknum og hafa staðið í vegi mikilvægra frumvarpa fyrir Demókrataflokkinn og Biden. Þessar ástæður, og aðrar, hafa leitt til þess að Demókratar óttast frekari hægri sveiflu í Hæstarétti og hafa margir þrýst á Breyer um að stíga til hliðar. Það virðist hafa skilað tilætluðum árangri. Samkvæmt frétt Washington Post hafa Biden og aðstoðarmenn hans verið að leita að dómara til að tilnefna í minnst mánuð. Kamalla Harris, varaforseti og fyrsta litaða konan til að gegna því embætti, mun hafa mikið um ákvörðunina, samkvæmt Jan Psaki, talskonu Bidens. Sjá einnig: Segja Biden munu standa við loforð um að tilnefna svarta konu Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, ætlar að hafa hraðar hendur. „Öldungadeildin mun halda sanngjarn staðfestingarferli sem mun ganga hratt svo við getum staðfest nýjan dómara til að taka við að Breyer eins fljótt og auðið er,“ sagði hann í yfirlýsingu sem New York Times vitnar í. Forsvarsmenn dómsmálanefndar öldungadeildarinnar eru þegar byrjaðir að undirbúa nefndarfundi um tilnefningu Bidens, samkvæmt frétt Politico. McConnell vill ekki öfgamann Mitch McConnell, ræddi við blaðamenn í Kentucky í vikunni og varaði Biden við því að tilnefnda „öfga-vinstri“ dómara í embættið. Hann gaf í skyn að Biden ætti að tilnefna einhvern sem væri við miðjuna því „þjóðin hefði kosið öldungadeild deildist jafnt milli flokk“. Því sagði McConnell að Biden hefði ekki umboð til að leiða þjóðina til vinstri heldur ætti hann að sameina þjóðina og tilnefnda dómara sem hefði sýnt fram á að hann myndi fylgja bókstaf stjórnarskrár Bandaríkjanna. Hér er vert að taka fram að fimmtíu öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins hafa rúmlega fjörutíu milljónir færri Bandaríkjamenn á bak við sig en öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins. McConnell hét því samt að hann muni meta þann dómara sem Biden tilnefnir af „sanngirni“. Senate Minority Leader Mitch McConnell says he ll give President Biden s SCOTUS nominee a fair look. pic.twitter.com/JQRktKmrzk— The Recount (@therecount) January 27, 2022 Susan Collins, þingkona Repúblikanaflokksins, hefur einnig kallað eftir því að þingmenn taki sér góðan tíma til að skoða hvern þann sem Biden tilnefnir. Hún sagði við blaðamenn í vikunni að staðfestingarferli Amy Coney Barrett hefði gengið of hratt og sagði mikilvægt að vanda til verks. Reglan um aukinn meirihluta gildir ekki Við hefðbundndar kringumstæðu er ekki nóg að vera með meirihluta í öldungadeildinni til að koma málum þar í gegn. Það er vegna sérstakrar reglu um málþóf í öldungadeildinni. Hún kallast reglan um aukinn meirihluta. Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður. Eins og áður segir skiptist deildin jafnt milli flokka, 50-50. Árið 2013 notuðu Repúblikanar þessa reglu til að koma í veg fyrir að Barack Obama gæti tilnefnt alríkisdómara og ýmsa embættismenn í embætti. Það leiddi til þess að Demókratar breyttu reglunum þannig að það þyrfti einungis 51 atkvæði til. Þær breytingar náðu þó ekki til tilnefnininga til Hæstaréttar. Þegar Trump tók við embætti árið 2017 breyttu Repúblikanar fljótt reglunum á nýjan leik svo þær næðu einnig til Hæstaréttar. Þess vegna gátu Demókratar engar varnir veitt þegar Trump tilnefndi þrjá dómara í forsetatíð sinni. Demókratar þurfa því einungis 51 atkvæði til að staðfesta tilnefningu Bidens. Það gæti þó reynst erfitt í framkvæmd og þá sérstaklega vegna áðurnefndra deilna innan flokksins. Hver einasti Demókrati þarf að standa saman til að ná tilnefningunni í gegn, eða flokkurinn þarf að treysta á stuðning frá Repúblikönum.
Reglan um aukinn meirihluta Reglan segir til um að þörf sé á 60 atkvæðum af hundrað fyrir flest frumvörp en á ensku kallast þessi regla „filibuster“. Hún felur í raun í sér að hvaða þingmaður sem er getur tafið störf þingsins með málþófi, nema minnst 60 þingmenn greiði atkvæði gegn því. Á árum áður þurftu þingmenn að standa í pontu og halda ræður til að stöðva störf þingsins með málþófi en því var breytt á þá leið að þingmenn þyrftu bara að lýsa því yfir að þeir ætluðu að tefja störf þingsins og ekki standa í pontu. Það þarf þó einungis 51 atkvæði til að fella regluna niður.
Bandaríkin Joe Biden Hæstiréttur Bandaríkjanna Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. 20. janúar 2022 12:37 Hæstiréttur hlýðir á mál er varðar vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna mun í dag hlýða á málflutning í máli sem varðar annan viðauka stjórnarskrár landsins, þar sem fjallað er um skotvopnaeign. Málið varðar lög í New York, sem takmarka verulega rétt fólks til að bera skotvopn. 3. nóvember 2021 12:32 Dómarar gætu leyft stefnur vegna þungunarrofsbannsins í Texas Íhaldssamir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virtust hallast að því að leyfa heilsugæslustöðvum sem framkvæmda þungunarrof að höfða mál til að fá bann við þungunarrofi í Texas ógilt þegar mál þeirra var tekið fyrir í dag. 1. nóvember 2021 23:26 Þungunarrofsbannið í Texas fær enn að standa Umdeilt þungunarrofsbann í Texas fær áfram að standa þrátt fyrir að það virðist stríða gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að alríkisdómstóll hafnaði kröfu dómsmálaráðuneytisins um að fella það úr gildi tímabundið í gær. 15. október 2021 09:37 Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að fella úr gildi ný lög í Texas sem banna þungunarrof í nær öllum tilfellum. Lögin tóku gildi í gær og kröfðust þá fjöldi samtaka sem berjast fyrir rétti kvenna til þungunarrofs þess að Hæstiréttur landsins myndi fella þau úr gildi. 2. september 2021 07:59 Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði blessun sína yfir strangari reglur um kosningar sem repúblikanar í Arizona samþykktu árið 2016 í dag. Lögin voru talin koma sérstaklega niður á minnihlutahópum sem eru líklegri til þess að kjósa demókrata. 1. júlí 2021 15:36 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. 20. janúar 2022 12:37
Hæstiréttur hlýðir á mál er varðar vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna mun í dag hlýða á málflutning í máli sem varðar annan viðauka stjórnarskrár landsins, þar sem fjallað er um skotvopnaeign. Málið varðar lög í New York, sem takmarka verulega rétt fólks til að bera skotvopn. 3. nóvember 2021 12:32
Dómarar gætu leyft stefnur vegna þungunarrofsbannsins í Texas Íhaldssamir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virtust hallast að því að leyfa heilsugæslustöðvum sem framkvæmda þungunarrof að höfða mál til að fá bann við þungunarrofi í Texas ógilt þegar mál þeirra var tekið fyrir í dag. 1. nóvember 2021 23:26
Þungunarrofsbannið í Texas fær enn að standa Umdeilt þungunarrofsbann í Texas fær áfram að standa þrátt fyrir að það virðist stríða gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að alríkisdómstóll hafnaði kröfu dómsmálaráðuneytisins um að fella það úr gildi tímabundið í gær. 15. október 2021 09:37
Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að fella úr gildi ný lög í Texas sem banna þungunarrof í nær öllum tilfellum. Lögin tóku gildi í gær og kröfðust þá fjöldi samtaka sem berjast fyrir rétti kvenna til þungunarrofs þess að Hæstiréttur landsins myndi fella þau úr gildi. 2. september 2021 07:59
Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði blessun sína yfir strangari reglur um kosningar sem repúblikanar í Arizona samþykktu árið 2016 í dag. Lögin voru talin koma sérstaklega niður á minnihlutahópum sem eru líklegri til þess að kjósa demókrata. 1. júlí 2021 15:36