Fundurinn gæti varpað ljósi á það hvort líf hafi fundist á Mars á árum áður en það hefur ekki verið sannað hingað til, þótt ýmsar vísbendingar um það hafi fundist.
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) sagði frá fundinum fyrr í vikunni og lýsti honum sem áhugaverðum. Í grein á vef stofnunarinnar, þar sem farið er nánar út í málið en hér, segir að umrædd tegund kolefna gæti hafa orðið til í lífrænu ferli baktería.
Þær bakteríur geti myndað metan sem flýtur upp í gufuhvolfið þar sem útfjólublá geislun breytir því í aðrar og flóknari sameindir sem falla aftur til jarðar og hafa nú fundist í sýnum Curiosity.
Curiouser & curiouser! I found samples with unusual carbon isotopes, which are key in understanding the evolution of planets. On Earth, this is linked to life but it may still be created by geology. What does it mean on Mars? Ah, that s the great puzzle! https://t.co/xLKj8QmEL9 pic.twitter.com/L3Gf8oFctP
— Curiosity Rover (@MarsCuriosity) January 18, 2022
Þá eru tvær tilgátur til viðbótar um það hvernig kolefnið myndaðist þar sem lífræn efni koma ekki við sögu. Önnur er svipuð þeirri tilgátu sem nefnd er hér að ofan, fyrir utan aðkomu lífrænna efna, og hin snýst um að kolefnið hafi endað á Mars fyrir hundruðum milljóna ára þegar sólkerfið okkar fór í gegnum þykkt gasský sem er ríkt af þeirri tegund kolefnis sem um ræðir.
Tilgátur vísindamanna taka þó mið af því ferli hér á jörðinni og er ekki víst að það sama eigi við á Mars.
Kolefni er sérstaklega mikilvægt allri leit að lífi á Mars. Allt líf hér á jörðinni er myndað úr kolefnum. Líf á jörðinni notar svokallað kolefni-12 við meltingu eða ljóstillífun. Kolefnið sem fannst á Mars er að mestu kolefni-12 og því þykir mögulegt að ummerki gamals lífs hafi fundist.
Áhugasamir geta lesið frekar um kolefni hér á Vísindavefnum.

Einn vísindamannanna sem unnið hefur úr gögnum frá Curiosity segir allar þrjár útskýringarnar sem nefndar eru hér að ofan koma til greina. Frekari gagna sé þörf til að skera úr um af hverju kolefnið sé þarna.
Ráðgátan um metan enn óleyst
Vísindamenn NASA og ESA, Geimvísindastofnunar Evrópu, hafa um nokkuð skeið reynt að finna svör við því af hverju mælitæki Curiosity hafa reglulega greint metan yfir Galegígnum en gervihnöttur sem er sérstaklega hannaður til að finna metan hefur ekki séð það.
Hér á jörðinni mynda örverur í maga dýra sem éta plöntur mikið metan. Því gasi er svo prumpað og ropað út í andrúmsloftið. Á Mars þykir fundur metans ekki til marks um að húsdýr eins og kýr og kindur megi finna á Mars, heldur megi mögulega finna örverur á plánetunni. Sömuleiðis gæti gasið myndast við jarðhitaferla.
Sjá einnig: Ráðgátan um metan á Mars enn óleyst
Curiosity lenti á Mars árið 2012 og hefur tekið fjölda sýna og rannsakað síðan þá. Á undanförnum árum hafa rannsóknir sýnt fram á að á árum áður hafi vatn fundist á yfirborði Mars og hafa vísindamenn fundið vatn neðanjarðar.