Innlent

1.289 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Mikill fjöldi einkennasýna var tekinn á Suðurlandsbraut í Reykjavík í gær.
Mikill fjöldi einkennasýna var tekinn á Suðurlandsbraut í Reykjavík í gær. Vísir/Vilhelm

1.289 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 485 af þeim 1.289 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 38 prósent. 804 voru utan sóttkvíar, eða 62 prósent.

Um er að ræða næstmesta fjölda sem hefur greinst með kórónuveiruna innanlands á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Mesti fjöldinn var 1.556 þann 30. desember síðastliðinn.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 8.641 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 7.937 í gær. 6.940 eru nú í sóttkví, en voru 6.273 í gær. 584 eru nú í skimunarsóttkví.

Á vef Landspítalans sagði í morgun að 28 sjúklingar liggi nú inni á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en voru 25 í gær. Átta eru á gjörgæslu, en voru sjö í gær. Sex eru í öndunarvél.

177 greindust á landamærunum í gær – 176 virk smit í fyrri landamæraskimun og eitt í seinni landamæraskimun. Aldrei hafa svo margir greinst á landamærunum frá upphafi faraldursins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 2.817,3, en var 2.543,8 á fimmtudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 240,0, samanborið við 197,4 á fimmtudag.

Alls hafa 32.540 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 38 andlát verið rakin til COVID-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×