Innlent

Erfiðara að sitja í ein­angrun en að setja sig inn í fjár­lögin

Óttar Kolbeinsson Proppé og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Varaþingmennirnir hafa helgina til að setja sig inn í mál málanna, fjárlagafrumvarp næsta árs.
Varaþingmennirnir hafa helgina til að setja sig inn í mál málanna, fjárlagafrumvarp næsta árs. vísir

Vara­þing­menn Við­reisnar eru klárir í slaginn en þeir þurfa að kynna sér fjár­laga­frum­varpið um helgina til að geta tekið þátt í um­ræðum á þinginu um það í næstu viku. Allir þing­menn Við­reisnar hafa greinst með kórónu­veiruna. Það er ein­stakt í sögunni að svo stór þing­flokkur sé al­farið skipaður vara­mönnum vegna veikinda.

„Já þetta var vissulega mjög óvænt. Ég frétti af þessu bara í morgun. Og auðvitað hugsar maður fyrst og fremst til þeirra sem smituðust en þetta er bara mikill heiður að fá að fara inn í þetta hús hérna á mánudaginn,“ segir varaþingmaðurinn Thomas Möller.

Hann var ekki alveg búinn að græja það sem hann þarf að klára fyrir jólin en honum gefst eflaust lítill tími til þess í næstu viku.

„En það var gerður skurkur í dag í jólainnkaupum og rauðkálið var skorið niður áðan. Þannig þetta er allt að koma.“

Rætt var við Thomas og Elínu Önnu Gísladóttur, varaþingmenn Viðreisnar í Kvöldfréttum í kvöld: 

Bagaleg staða

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er sjálfur í sóttkví ásamt öllum sínum þingflokki eftir að Oddný G. Harðardóttir, þingmaður flokksins, greindist með veiruna. Hann segir það bagalegt að svo margir þinmenn séu úr leik við umræðu um fjárlögin.

„Það er auðvitað bagalegt þegar kannski mikilvægustu lög landsins eru til umræðu og við búin að setja okkur mikið inn í þau að þurfa að kalla algerlega nýtt fólk að borðinu í svo miklum mæli eins og til dæmis Viðreisn þarf að gera,“ segir Logi.

Þrátt fyrir það telja varaþingmennirnir sig tilbúna til að takast á við áskorunina. 

„Við erum bara tilbúin í slaginn og hlökkum til að takast á við þetta verkefni. Þetta er stór áskorun auðvitað en við erum tilbúin,“ segir Elín Anna. 

Nú reynir á varaþingmenn stjórnarandstöðunnar. Elín Anna er tilbúin í slaginn.Viðreisn

Það eru ekki bara þingmenn Viðreisnar sem eru smitaðir heldur líka starfsfólk þingflokksins. 

„Og hugur okkar er náttúrulega bara hjá starfsfólkinu og þingmönnunum sem eru veikir og við vonum að þau veikist ekki illa. Og almennt bara allir landsmenn – það er fullt af fólki í einangrun, það er erfitt, það er jólatíð núna og fólk vill vera með fjölskyldunni sinni. Þannig að þó að við fáum stórt verkefni að glíma við þá held ég að það sé erfiðara að sitja heima í einangrun núna,“ segir Elín Anna. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×