Innlent

Engar ára­móta­brennur á höfuð­borgar­svæðinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Engar brennur þetta árið, eins og í fyrra.
Engar brennur þetta árið, eins og í fyrra. Vísir/Vilhelm

Á fundi framkvæmdaráðs almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í dag var tekin ákvörðun um að fella niður áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu um komandi áramót.

Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að núverandi fjöldatakmarkanir vegna sóttvarnaaðgerða miðast við fimmtíu manns og mikið er um smit í samfélaginu.

„Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra þá draga þær að sér fjölda fólks og það er mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir einnig að sveitarfélögin átti sig á því að þessi ákvörðun geti valdið vonbrigðum margra en það sé mikilvægt að vinna að því saman að fækka smitum, meðal annars með því að forðast mannmergð og leggja áherslu á fagna hátíðunum í minni hópum.

Þetta er annað árið í röð sem áramótabrennum er aflýst vegna faraldurins en það var einnig gert á síðast ári.


Tengdar fréttir

Af­lýsa öllum ára­móta­brennum á höfuð­borgar­svæðinu

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fella niður allar áramótabrennur sem skipulagðar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu í ár. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að samkomubann miðast við tíu manns og „mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×