Innlent

Ríkið dæmt til að greiða hundruð milljóna vegna Guð­mundar- og Geir­finns­málsins

Tryggvi Páll Tryggvason og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Guðjón Skarphéðinsson fær hundruð milljóna frá ríkinu.
Guðjón Skarphéðinsson fær hundruð milljóna frá ríkinu. Stöð 2

Íslenska ríkið þarf að greiða dánarbúi Kristjáns Viðars Júlíussonar 350 milljónir króna og Guðjóni Skarphéðinssyni 260 milljónir króna í bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Bótakröfu dánarsbús Tryggva Rúnars Leifssonar var vísað frá dómi.

Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kveðin var upp fyrir stundu. Þarf ríkið því að greiða 610 milljónir í bætur en frá upphæðinni dragast bætur sem ríkið hafði áður greitt Guðjóni og Kristjáni Viðari. 

Kröfurnar má rekja til Guðmundar- og Geirfinnsmálsins svokallaða en Tryggvi Rúnar og Kristján voru sakfelldir vegna hvarfs Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar árið 1980. Guðjón var á sama tíma dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa átt hlut í dauða Geirfinns.

Hér að neðan má sjá viðtal við Ragnar Aðalsteinsson, lögmann Guðjóns, sem tekið var í Landsrétti eftir að dómur féll.

Þeir voru allir þrír sýknaðir í Hæstarétti árið 2018 ásamt Sævari Marinó Cieselski og Alberti Klahn Skaftasyni eftir að málið var endurupptekið.

Alls fór dánarbú Kristjáns Viðars fram á 1,63 milljarða í miskabætur en dánarbú Tryggva Rúnars fór fram á 1,6 milljarða króna í bætur. Guðjón krafðist 1,3 milljarða í bætur.

Héraðsdómur sýknaði íslenska ríkið af kröfunum á síðasta ári en um er að ræða þrjú aðskilin mál. Þeim var áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp úrskurð sinn í dag.

Hér að neðan má sjá viðtal við Arnar Þór Stefánsson, lögmann dánarbús Kristjáns Viðars Júlíussonar, sem tekið var í Landsrétti eftir að dómur féll.

Alls voru 774 milljónir greiddar úr ríkissjóði á síðasta ári til þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í Hæstarétti í september 2018 og til maka og barna þeirra tveggja sem látnir eru. Þá fékk Kristján Viðar 204 milljónir og aðstandendur Tryggva Rúnars alls 171 milljón en Guðjón Skarphéðinsson 145 milljónir.


Tengdar fréttir

Ríkið sýknað af kröfum Kristjáns Viðars og dánarbús Tryggva Rúnars

Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum Kristjáns Viðars Júlíussonar og dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar. Kröfurnar tengjast Guðmundar- og Geirfinnsmálunum en Tryggvi og Kristján voru sakfelldir vegna hvarfs Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar árið 1980.

Blóðsonur Tryggva Rúnars fær engar bætur af því að hann var ættleiddur

Sonur Tryggva Rúnars Leifssonar, sem ættleiddur var tólf ára, fær ekki bætur frá íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar föður síns í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu í gær en sonurinn hafði krafið ríkið um 85 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×