Hvessir í kvöld vegna ört vaxandi lægðar sem nálgast Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2021 07:06 Það gengur í suðaustanstorm með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands í nótt og fyrramálið. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega eiga von á fremur hægum vindum í dag og léttir smám saman til. Frost veður víða á bilinu núll til fimm stig.
Á vef Veðurstofunnar segir að langt suðvestur í hafi sé ört vaxandi lægð sem hreyfist allhratt norðaustur á bóginn. Í kvöld nálgast skil lægðarinnar svo hvessa tekur úr suðaustri. Síðan þykknar upp og hlýnar. „Gengur í suðaustanstorm með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands í nótt og fyrramálið, en hægara og úrkomuminna fyrir norðan og austan. Suðaustanstrekkingur og dálítil rigning eða skúrir síðdegis og áfram svipað veður á sunnudag. Eftir helgi snýst líklega í norðanáttir og kólnar þá aftur,“ segir í tilkynningunni. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustan og austan 15-23 m/s og talsverð rigning eða slydda SA-til um morguninn, annars úrkomuminna, en dregur síðan hægt úr vindi og úrkomu. Suðaustan 10-18 og rigning með köflum undir kvöld, en þurrt á N-landi. Hiti 1 til 7 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt, 10-18 m/s, hvassast syðst og skúrir eða slydduél, en þurrt að mestu á N- og A-landi. Hiti 0 til 6 stig. Á mánudag: Suðlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s, skúrir eða él og hiti 0 til 4 stig, en bjartviðri N- og A-lands og vægt frost þar. Á þriðjudag: Stíf norðan- og norðaustanátt með rigningu eða slyddu, en snjókomu fyrir norðan. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag: Lítur út fyrir hæga norðlæga átt með dálitlum éljum, en úrkomulítið sunnan heiða og vægt frost. Á fimmtudag: Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með slyddu eða snjókomu og heldur hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Sjá meira