Veður

Snjó­koma með köflum norðan­lands en stöku él sunnan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Frost verður yfirleitt á bilinu núll til átta stig í dag.
Frost verður yfirleitt á bilinu núll til átta stig í dag. Vísir/Vilhelm

Landsmenn mega reikna vestan- og suðvestan kalda eða strekkingi í dag og snjókomu með köflum um landið norðanvert, en stöku él sunnanlands. Hægari vindur seinnipartinn og styttir upp fyrir norðan.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að frost verði yfirleitt á bilinu núll til átta stig.

„Suðlæg átt á morgun, víða gola eða kaldi og bjartviðri og áfram svalt í veðri. Það verða hins vegar stöku él sunnan- og vestantil á landinu og þar hlýnar smám saman, og seinnipartinn má búast við skúrum við ströndina með hita rétt yfir frostmarki.

Annað kvöld bætir svo í vind um landið vestanvert og þá fer jafnframt að snjóa fyrir austan.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðlæg átt 5-10 m/s og bjartviðri, en stöku skúrir eða él S- og V-til. Bætir í vind V-lands síðdegis. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum á NA-landi, en frostlaust við SV- og V-ströndina.

Á fimmtudag: Austan og suðaustan 8-15 og rigning eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið á N-landi. Hægari um kvöldið. Hiti kringum frostmark.

Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og dálítil slydda eða snjókoma á víð og dreif. Hiti breytist lítið. Hvessir um kvöldið.

Á laugardag: Hvöss suðaustan- og austanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið á N-landi. Talsverð úrkoma um landið SA-vert. Hiti 1 til 7 stig.

Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á NA- og A-landi. Kólnar heldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×