Veður

Él fram eftir degi á Norður- og Austur­landi en annars bjart

Atli Ísleifsson skrifar
Snýst í suðvestan kalda í kvöld, með éljum vestanlands.
Snýst í suðvestan kalda í kvöld, með éljum vestanlands. Vísir/Vilhelm

Norðan hvassviðri eða stormur var víða á landinu í nótt en í dag lægir, fyrst vestantil á landinu. Reikna má með éljum fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en annars bjart.

Á vef Veðurstofunnar segir að það sé kólnandi veður, frost núll til átta 8 stig síðdegis.

„Snýst í suðvestan kalda í kvöld, með éljum vestanlands.

Vestan strekkingur á morgun og snjókoma eða rigning víða um land. Þessu fylgir væg hláka, en það frystir aftur síðdegis og um kvöldið. Þá snýst vindur í ákveðna norðanátt með éljum á Norður- og Austurlandi, en styttir upp í öðrum landshlutum.“

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Vestlæg átt 8-15 m/s og rigning eða snjókoma, hiti 0 til 6 stig. Norðan 10-18 og él um kvöldið, en styttir upp S- og V-lands. Kólnandi veður.

Á föstudag: Norðvestan 13-20 A-til fram eftir degi og auk þess él á NA-landi, annars norðlæg eða breytileg átt 3-10 og bjart með köflum. Frost 2 til 10 stig.

Á laugardag: Fremur hæg suðlæg átt, skýjað með köflum og dálítil él S- og V-lands. Frost 1 til 9 stig, en hlánar við SV- og V-ströndina.

Á sunnudag: Suðaustan- og austanátt með rigningu eða slyddu, en snjókomu og vægu frosti á NA- og A-landi.

Á mánudag og þriðjudag: Líklega umhleypingar og úrkomusamt á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×