Suðvestanátt og skúrir eða él á landinu Atli Ísleifsson skrifar 15. nóvember 2021 07:06 Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig og mildast suðaustantil. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðvestanátt í dag, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu og skúrum eða éljum, en rigningu sunnantil á landinu fram eftir degi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði lengst af þurrt á Norðausturlandi, en þó megi búast við dálítilli vætu þar um tíma eftir hádegi. Hiti verður á bilinu eitt til sjö stig og mildast suðaustantil. „Víða fremur hægur vindur og él á morgun, en þurrt norðaustan- og austanlands þar til síðdegis. Vindurinn gæti þó orðið heldur meiri á suðvesturlandi, en spár eru ekki sammála um hvort vestan vindstrengur nái þar inn. Hiti um og undir frostmarki. Annað kvöld snýst svo í norðlæga átt með snjókomu eða éljum á norðanverðu landinu, en þá styttir upp sunnan heiða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og él, en hægari vindur og úrkomulítið NA og A-lands. Gengur í norðan 8-15 um kvöldið með snjókomu eða éljum á N-verðu landinu, en þurrt syðra. Hiti um og undir frostmarki. Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 og bjartviðri S- og V-lands. Norðvestan 13-20 A-til á landinu og auk þess éljagangur NA-lands, en styttir upp og lægir þar seinnipartinn. Frost 1 til 7 stig. Austan 5-10 um kvöldið og þykknar upp um landið S-vert. Á fimmtudag: Austlæg átt, víða á bilinu 5-10 m/s. Rigning eða slydda með köflum S-lands og hiti 1 til 5 stig, en þurrt að kalla um landið N-vert og frost 1 til 8 stig. Bætir í vind um kvöldið með snjókomu eða slyddu víða um land. Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-10 og snjókoma eða él, en styttir upp sunnan heiða. Víða vægt frost, en frostlaust við suðurströndina. Á laugardag: Snýst í vestlæga átt með þurru og svölu veðri, en þykknar upp og hlýnar V-til um kvöldið. Á sunnudag: Suðvestlæg átt og rigning eða slydda með köflum. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira