Allhvasst við suðurströndina en annars víða bjart veður Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2021 07:29 Hiti verður frá fjórum stigum suðvestantil og niður í tíu stiga frost í innsveitum norðaustanlands. Vísir/Vilhelm Reikna má með austlægri átt í dag, allhvössu og frostlausu veðri við suður- og suðausturströndina og sums staðar dálítilli úrkomu. Annars staðar þurrt og víða bjart veður með væru frosti.
Hiti verður frá fjórum stigum suðvestantil og niður í tíu stiga frost í innsveitum norðaustanlands, en draga mun úr frosti er líður á daginn. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það muni svo hvessa í nótt og í fyrramálið. Suðaustan stormur og talsverð rigning sunnan- og vestantil síðdegis á morgun, en hægari og þurrt í öðrum landshlutum fram undir kvöld. Hlýnar talsvert í bili. Þeir sem huga á ferðalög er bent á að fylgjast með veðurspá og eins þeir sem eiga eftir að ganga frá lausamunum, að gera það í tíma. Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í suðaustan 15-23 m/s með rigningu, en úrkomulítið norðanlands fram á kvöld. Hlýnandi veður, hiti 6 til 12 stig síðdegis, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan. Á sunnudag: Hvöss sunnanátt og rigning í fyrstu, en snýst síðan í hvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum og kólnar. Þurrt norðaustantil á landinu. Á mánudag: Stíf suðvestanátt með S-ströndinni, en annars mun hægari. Rigning eða slydda, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 7 stig, mildast með S-ströndinni. Á þriðjudag: Suðvestlæg átt með slydduéljum og síðar éljum um landið S-vert, en norðaustlægari vindur NV-lands og snjókoma, annars þurrt. Kólnar í veðri. Á miðvikudag: N-læg átt með éljum eða snjókomu, en þurrt sunnan heiða. Vægt frost víðast hvar. Á fimmtudag: Útlit fyrir minnkandi norðanátt með dálitlum éljum fyrir norðan. Vaxandi austanátt um kvöldið og þykknar upp sunnantil
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira