Reikna með hægum vindi og dálítilli úrkomu sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 10. nóvember 2021 07:23 Hiti á landinu verður um og yfir frostmarki, en frystir víða í kvöld. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðan átta til þrettán metrar á sekúndu á norðanverðu landinu með snjúkomu eða éljum í dag. Reikna má með hægari vindi og dálitlum éljum eða skúrum sunnanlands, en vaxandi norðanátt þar eftir hádegi og léttir til.
Hiti á landinu verður um og yfir frostmarki, en frystir víða í kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á morgun sé spáð suðaustan og austan fimm til tíu metrum á sekúndu á Suður- og Vesturlandi, skýjað með köflum og stöku skúrum eða éljum. „Hiti kringum frostmark. Hægari vindur norðan- og austanlands, léttskýjað og frost að 10 stigum í innsveitum. Síðan eru áfram horfur á rólegu veðri á föstudaginn. Um helgina er hins vegar spáð hvössum vindi á landinu, með rigningu á laugardag, en skúrum eða éljum á sunnudag. Úrkoman verður einkum bundin við sunnan- og vestanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan og austan 5-10 m/s á Suður- og Vesturlandi, skýjað með köflum og stöku skúrir eða él. Hiti kringum frostmark. Hægari vindur norðan- og austalands, bjartviðri og frost að 10 stigum í innsveitum. Á föstudag: Suðaustan 5-10, en 10-15 við suðvesturströndina. Víða skýjað með köflum, þurrt veður og vægt frost. Smáskúrir með austur- og suðurströndinni og frostlaust þar. Á laugardag: Gengur í suðaustan 15-23 m/s með rigningu, en úrkomulítið norðanlands. Hlýnandi veður, hiti 6 til 12 stig síðdegis, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan. Á sunnudag: Hvöss sunnanátt og rigning í fyrstu, en snýst síðan í hvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum og kólnar. Þurrt norðaustantil á landinu. Á mánudag: Stíf suðvestanátt með rigningu eða slyddu, síðar éljum. Úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 5 stig. Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt og él, en áfram þurrt að mestu í norðausturfjórðungi landins. Vægt frost víða um land.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira