Gular viðvaranir sunnanlands vegna hvassviðris í dag Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2021 07:10 Vindakortið fyrir klukkan 16 í dag. Spáð er miklu hvassviðri sunnantil í dag. Veðurstofan Nú í morgunsárið verður frekar bjart og kalt með hægum vindum á norðanverðu landinu. Fyrir sunnan er hins vegar austangola, skýjað að mestu og er hitinn kominn yfir frostmark. Gular viðvaranir taka gildi um hádegisbil á sunnanverðu landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag muni áfram hvessa og eftir hádegi verði austan tíu til átján metrar á sekúndu, en átján til 25 metrar allra syðst með rigningu. Er gert ráð fyrir hvössum vindhviðum, 35 til 40 metrum á sekúndu bæði undir Eyjafjöllum og í Öræfum. „Slíkir vindar eru varasamir ökutækjum sem taka á sig mikinn vind og þess vegna er gular viðvaranir í gildi fyrir sunnanvert landið [Suðurland, Suðausturland og Miðhálendi]. Í kvöld mun draga hægt og rólega úr vindi sunnantil, en hvessa fyrir vestan með allt að 23 m/s og bætir í úrkomu fyrir austan. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast á sunnanverðu landinu. Gular viðvaranir taka gildi um hádegisbil á sunnanverðu landinu. Á morgun er spáð norðaustlægri átt með rigningu og slyddu fyrir norðan, en skýjað með köflum og þurrt að kalla sunnantil. Heldur svalara á morgun. Eftir morgundaginn er gert ráð fyrir lægðir suður og austur af landinu. Norðaustanátt og slydda eða snjókoma fyrir norðan og dálítil rigning eða slydda annars staðar. Hiti yfirleitt á bilinu 1 til 7 stig, hlýjast syðst.“ Landsmenn mega reikna með rigningu víða um land í dag og vindasömu veðri.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag og fimmtudag: Norðaustan 10-18 m/s og rigning eða slydda, hvassast um landið norðvestanvert, en hægari og lengst af úrkomulítið sunnanlands. Hiti 1 til 7 stig. Á föstudag og laugardag: Ákveðin norðaustanátt norðvestantil og rigning eða slydda, en annars hægari og rigning af og til. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Á sunnudag: Norðlæg átt, skýjað og væta fyrir norðan, en þurrt að kalla sunnantil. Heldur kólnandi veður. Á mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og sums staðar lítilsháttar slydda eða snjókoma. Fremur kalt í veðri.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira