Silja Mist fer frá Nóa Síríus til Orkuveitunnar Eiður Þór Árnason skrifar 12. október 2021 15:10 Silja Mist Sigurkarlsdóttir, nýráðinn markaðsstjóri ON. Gunnhildur Lind Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Hún kemur til fyrirtækisins frá Nóa Síríus þar sem hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu ár.
Silja verður hluti af einingu innan OR sem kallast Samskipti og samfélag sem sér um öll markaðs- og kynningarmál OR samstæðunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu en Silja er fædd árið 1991. Hún hóf störf hjá Nóa Síríus árið 2016 eftir að hún lauk námi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, fyrst sem vöruþróunarstjóri og síðar sem markaðsstjóri. Silja hefur meðfram vinnu sinni sinnt kennslu í markaðsfræðum og vöruþróun við Háskólann í Reykjavík. Stórar áskoranir í orkuskiptum Silja telur að reynsla sín hjá Nóa Sírus muni hjálpa sér að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru hjá Orku náttúrunnar. „Á raforkumarkaði ríkir afar spennandi samkeppnisumhverfi sem ég er spennt að takast á við með umhverfismálin sem ég brenn svo fyrir að leiðarljósi. Það er klárt mál að þegar kemur að orkuskiptunum eru áskoranirnar stórar og ég get ekki beðið eftir því að takast á við þær með því frábæra fólki sem ég veit að starfar hjá Orku náttúrunnar,“ segir Silja í tilkynningu. „Við hjá Orkuveitu samstæðunni erum afar glöð og ánægð með að fá Silju Mist til liðs við okkur enda hefur hún vakið verðskuldaða athygli fyrir störf sín hjá Nóa Síríus. Silja er með frábæra sýn og nálgun á markaðsmálin sem mun klárlega nýtast okkur í baráttunni í því kvika samkeppnisumhverfi sem raforkumarkaðurinn er,“ segir Breki Logason, stjórnandi Samskipta og samfélags.
Vistaskipti Orkumál Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira