Lægðin ekki dauð úr öllum æðum Atli Ísleifsson skrifar 29. september 2021 07:09 Lægðin veldur sunnan- og suðvestan strekkingi á landinu með skúrum eða slydduéljum. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli illviðrinu í gær er nú stödd við Snæfellsnes, en hefur grynnst mikið. Lægðin er þó ekki dauð úr öllum æðum og í dag veldur hún sunnan- og suðvestan strekkingi á landinu með skúrum eða slydduéljum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að reikna megi með hægari vindi og bjartviðri norðaustantil. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig. „Í kvöld og nótt lægir meira á landinu, þegar áðurnefnd lægð fjarlægist og grynnist meira og er hún þar með úr sögunni. Á morgun nálgast önnur lægð suðaustanvert landið úr suðri. Þá er útlit fyrir hægt vaxandi norðaustanátt, víða strekkingur síðdegis, en hvassviðri eða jafnvel stormur suðaustanlands annað kvöld. Ringing af og til á austanverðu landinu á morgun, en þurrt vestantil. Hlýnar lítillega í veðri,“ segir í tilkynningunni. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vaxandi norðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis, en 18-23 suðaustanlands. Rigning á austanverðu landinu, en þurrt vestantil. Hiti víða 2 til 7 stig. Á föstudag og laugardag: Norðaustan og norðan 8-15 og rigning, en þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 3 til 9 stig, mildast syðst á landinu. Á sunnudag og mánudag: Stíf norðanátt. Rigning, slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu, en þurrt sunnantil. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 8 stig við suðurströndina. Á þriðjudag: Austan og suðaustanátt og rigning með köflum sunnanlands, hiti 2 til 7 stig. Þurrt um landið norðanvert og hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Sjá meira