Google taldi mikla eftirspurn eftir íslensku appi vera netárás og lokaði Eiður Þór Árnason skrifar 21. september 2021 11:53 Adam Viðarsson og Guðmundur Egill Bergsteinsson, stofnendur Lightsnap. Aðsend Íslenska appið Lightsnap hefur gert gott mót í Svíþjóð en þjónustan gerir notendum kleift að taka ljósmyndir sem þeir fá ekki að sjá fyrr en prentuð eintök eru send heim að dyrum.
Er appinu ætlað að líkja eftir einnota myndavélum sem margir kannast við að hafa mundað við ýmis tækifæri fyrir tíma snjallsímans. Opnunin í Svíþjóð gekk ekki stórslysalaust fyrir sig en að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins lokaði Google skyndilega fyrir nýskráningar hjá Lightsnap þegar sjálfvirk kerfi tæknirisans töldu að netárás skýrði mikla ásókn í þjónustu íslenska sprotafyrirtækisins. Vegna þessa var fólki gert ókleift að skrá nýjan notenda hjá Lightsnap í um tólf tíma. Eftir að vandamálið var leyst byrjuðu nýskráningar að streyma inn á ný. Notendur þurfa að bíða eftir því að fá myndirnar sendar heim að dyrum.Lightsnap Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lightsnap en eftir góðan árangur á Íslandi vildu stofnendur færa út kvíarnar og semja við prentsmiðjur og póstdreifingaraðila í Svíþjóð. Afrakstri þeirrar vinnu var hleypt af stokkunum þann 14. september síðastliðinn og fengu fyrstu 2.000 notendurnir að prenta fría prufumynd. „Við hrintum af stað áhrifavaldaherferð og viti menn, Svíarnir hoppuðu svo sannarlega á vagninn,“ segir Guðmundur Egill Bergsteinsson, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Lightsnap, í tilkynningu. Tóku fyrstu skrefin á Íslandi Guðmundur segir að markmiðið hafi verið að reyna að fylgja eftir árangri þeirra á Íslandi þar sem viðskiptavinir Nova fengu að prófa þjónustuna með því að prenta eina mynd sér að kostnaðarlausu. Að sögn Guðmundar keypti tæpur helmingur þeirra sem notuðu prufuna nýja „filmu“ á innan við sjö dögum. Lightsnap fór í gegnum íslenska viðskiptahraðalinn Startup Supernova sumarið 2020 og var þjónustan þá fyrst gerð aðgengileg Íslendingum. Nú í sumar var síðan opnað fyrir evrópskan markað. Stofnendur fyrirtækisins kynntu hugmyndina á Startup Supernova í fyrra. Horfa má á kynninguna í spilaranum. „Aðeins 12 tímum eftir að hafa gefið appið út í Svíþjóð sprengdum við nýskráningarfjöldann hjá Google og mikil eftirvænting skapaðist þar sem fjöldinn allur af fólki hafði samband sem komst ekki inn í Lightsnap. Við hringjum í Google og reynum að leysa úr þessu en þeir svara að það hafi verið slökkt á okkur þar sem grunur var um netárás á kerfið okkar,” segir Guðmundur. Nýtur vinsælda í brúðkaupum og hjá nýjum foreldrum Fram kemur í tilkynningu að yfir 4.000 noti nú Lightsnap á Íslandi sem hafi sent yfir 25 þúsund prentaðar ljósmyndir á síðastliðnu ári. „Við ákváðum að bæta við 2000 fleiri fríum filmum þar sem að viðtökur voru svo ótrúlegar og hlökkum til að sjá hvernig Svíarnir taka í að sjá myndirnar sínar í fyrsta sinn við heimsendingu eins og í gamla daga” segir Guðmundur í tilkynningu. Um leið og myndirnar eru sendar af stað eru þær einnig aðgengilegar á stafrænu formi í Lightsnap appinu. Notendaviðmót Lightsnap. LightSnap Að sögn Guðmundar hefur appið notið vinsælda í kringum veislur og brúðkaup auk þess sem nýbakaðir foreldrar noti það til að fanga fyrstu skref í lífi barna sinna. „Upplifun myndanna verður svo miklu sterkari þegar þú mátt ekki sjá þær beint. Ímyndaðu þér að taka augnablikið þegar þú segir fjölskyldu og vinum að þú sért barnshafandi eða þegar barnið þitt er að stíga sín fyrstu skref. Þegar maður fær síðan að sjá þessar myndir á í prentuðu formi verða minningarnar miklu raunverulegri en maður hefði séð þær í gegnum farsíma og síðan er það líka bara ótrúlega skemmtilegt,“ segir Adam Viðarsson, tæknistjóri og annar meðstofnandi Lightsnap.
Nýsköpun Svíþjóð Google Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Fleiri fréttir Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Sjá meira