Veður

Vætu­samir dagar fram­undan

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu átta til fimmtán stig í dag.
Hiti á landinu verður á bilinu átta til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm

Fremur vætusamt verður næstu daga og mun rigna í öllum landshlutum, þó mismikið og ekkert endilega á sama tíma heldur og eins munu koma kaflar þar sem dagpartar verða alveg þurrir.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu átta til fimmtán stig, hlýjast á Norðausturlandi.

„Vindur flesta daga skaplegur og munu nokkrar smálægðir gera sig líklega í nágrenni við landið sem aftur gefur breytilegar vindáttir. Sömuleiðis er hiti almennt þokkalega hár miðað við að komið er fram í miðjan september.“

Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðaustan 8-15 m/s og víða rigning, en úrkomulítið NA-lands. Hægari breytileg átt um kvöldið og bætir í úrkomu. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á N-landi.

Á föstudag: Norðlæg átt 3-10 m/s, víða skúrir eða rigning, síst vestast og kólnar heldur.

Á laugardag: Hæg breytileg átt, skýjað og dálítil væta, einkum fyrir norðan. Hiti 5 til 11 stig.

Á sunnudag og mánudag: Suðlægar áttir með vætu víða um land, en fremur milt veður.

Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestanátt með vætu en þurrt SA-til. Hiti 5 til 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×