Skoðun

Ég kýs Sósíalistaflokk Íslands

Mikael Torfason skrifar

Í fyrstu kosningunum sem ég kaus í var jöfnuður hvergi meiri í heiminum en á Íslandi. Ég var ungur rithöfundur og nýbúinn að kaupa mér íbúð og kaus Alþýðubandalagið. Davíð Oddsson myndaði ríkisstjórn og næstu árin kaus ég þessa flokka til vinstri og mín atkvæði voru ekki greidd stjórnarflokki fyrr en Samfylkingin varð „sætasta stelpan á ballinu“ eins og Geir H. Haarde orðaði það korteri í hrun. Þá hafði Sjálfstæðisflokkurinn gert Ísland að landi ójöfnuðar og fljótlega fór allt á hliðina.

Samfylkingin, rétt eins og Vinstri grænir nú, vildu ganga milliveginn og reyna að semja við Sjálfstæðisflokkinn en gengu þess í stað fyrir björg fyrir þennan flokk sem færði Íslendingum nýfrjálshyggjuna sem hefur hér kollriðið öllu síðan ég kaus fyrst í alþingiskosningum.

Nýfrjálshyggjan fór illa með Ísland. Hún gleypti í sig verkamannabústaði og sigaði hrægömmum á okkar fátækasta fólk sem eru leigjendur. Þetta er ekki staðan í flestum löndum Evrópu þar sem lágmark þriðjungur íbúða er í eigu ríkis, sveitarfélaga eða félagasamtaka. Það má ekki vera minna því annars sköðum við samfélagið. Í Vínarborg, þar sem ég bjó þar til fyrir ekki svo löngu er þetta hlutfall 55%. Í Berlín, þar sem ég bý núna, er um fjórðungur íbúða í eigu einkaaðila sem búa þá í eigin íbúð, tæplega 40% íbúða er í eigu hagnaðardrifinna leigufyrirtækja og restin, ca. 35% er í eigu hins opinberra eða félagasamtaka. Og svona er fyrirkomulagið í flestum löndum sem ekki hafa látið nýfrjálshyggjuna eyðileggja grunnstoðir samfélagsins eins og raunin er á Íslandi þar sem aðeins 8% húsnæðis gæti flokkast sem félagslegt húsnæði. Það er af sem áður var því á árunum 1987 - 1994 var um þriðjungur allra nýbygginga á Íslandi félagslegar íbúðir. Þessi breyting hefur skelfileg áhrif á tekjulágar fjölskyldur, öryrkja, lífeyrisþega og ungt fólk sem er að fóta sig í lífinu. Það er allt annað að ætla að byrja að búa árið 2022 en var þegar ég leigði mína fyrstu íbúð á Hverfisgötu árið 1992.

Kosningarnar nú eru mikilvægar. Við höfum lofað stjórnmálaflokkunum sem hafa valið að starfa með Sjálfstæðisflokki að ganga of langt í að níðast á fátæku fólki. Það er skömm af því að fara illa með þá sem minnst eiga. Við gengum alltof langt í þessari markaðshyggju og meðvirkni okkar með Sjálfstæðisflokknum verður að linna. Þess vegna ætla ég að kjósa Sósíalistaflokk Íslands.

Höfundur er rithöfundur. 




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×