Segir tilkynningu um hópnauðgun hafa komið inn á borð KSÍ Eiður Þór Árnason skrifar 30. ágúst 2021 23:36 Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. Vísir/Egill KSÍ hefur til meðferðar tilkynningu um hópnauðgun. Þetta kom fram í máli Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, í tíufréttum RÚV í kvöld þegar hún var spurð hvort mál Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur væri eina kynferðisafbrotamálið sem hún vissi af á borði sambandsins.
Klara sagðist hafa heyrt um hópnauðgunina í sumar og að málið hafi verið sett í ferli innan KSÍ. Þórhildur greindi nýverið frá því að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu leikmanns karlalandsliðsins í knattspyrnu haustið 2017. Leikmaðurinn játaði brot sín og greiddi henni miskabætur. Er þetta eina brotið sem þú hefur vitað um? „Já og nei, ég náttúrulega heyrði í sumar af brotum, sem hefur verið … já semsagt af þessari hópnauðgun og það mál var líka flutt í ferli. Við höfum sagt það opinberlega að það ferli gekk ekki nógu vel hjá okkur og það er ein af ástæðum þess að við erum hér í kvöld,“ sagði Klara í tíufréttum RÚV. Bætti hún við að stjórn KSÍ hafi um helgina fengið ábendingu um annað kynferðisbrotamál. Stjórnin hafi í kjölfarið sótt ráðgjöf til nýstofnaðs starfshóps sem sé ætlað að koma meðferð slíkra mála í betri farveg innan sambandsins. „Það kom til ákveðins stjórnarmanns og viðkomandi stjórnarmaður flutti það í ferli til þess sem hefur tekið að sér að vera formaður þess starfshóp sem um ræðir.“ Klara sagðist ekki vera viss um hvort síðarnefnda málið varði liðsmann karlalandsliðsins. „Ég spurði ekki út í efnisatvik en ég veit að þessi stjórnarmaður fékk ábendingu um það, kom því strax áfram og flutti málið í ferli. Kynferðisafbrotamál eru viðkvæm mál og þau eiga ekki að þvælast á milli manna. Við eigum að sjá til þess að það verði gengið í þau en við eigum ekki að hafa þau í umræðu milli manna ef þess þarf ekki.“ Sambandið hefur síðustu vikur verið harðlega gagnrýnt fyrir meðferð sína á kynferðisabrotamálum og tilkynnti stjórn KSÍ í kvöld að hún ætlaði að stíga til hliðar. Þá sagði Guðni Bergsson af sér sem formaður KSÍ um helgina. Greindi frá hópnauðgun í maí Líkur eru á því að umrædd hópnauðgun tengist máli konu um þrítugt sem greindi frá því undir eigin nafni á Instagram í maí að tveir íslenskir menn hafi nauðgað henni í útlöndum árið 2010. Þeir hefðu á þeim tíma verið þekktir og annar væri þjóðþekktur í dag. Um er að ræða tvo landsliðsmenn og er annar þeirra ein stærsta stjarna íslenska karlalandsliðsins. „Ég var búin að drekka áfengi en grunar að einhver hafi sett eitthvað í glasið mitt, gæti hafa verið hvað sem er. Til að gera langa sögu stutta þá ældi ég yfir annan þeirra í leigubílnum á leiðinni á hótelið þeirra, svo aftur í rúmið á hótelinu en þeir létu það ekki stoppa sig og skiptust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúminu ber að neðan með ælu í hárinu, andlitinu og fötunum,“ sagði í færslunni en konan var um tvítugt þegar atvikið átti sér stað. Hún bætti við að ekki liði sá dagur, á þeim ellefu árum sem liðin væru frá atburðinum, að hann kæmi ekki upp í hug hennar. Hún hafi ætlað að kæra, ráðið lögfræðing og farið í skýrslutöku hjá lögreglu. Alls staðar hafi henni verið tjáð að málið væri erfitt þar sem brotið hefði gerst erlendis og orð þeirra tveggja væru gegn henni einni. Hún hafi ítrekað verið spurð hvort hún vildi leggja málið á sig. „Eftir margra mánaða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig andlega.“ Konan kemur fram undir nafni á samfélagsmiðlum en hún hefur sjálf sterka tengingu við íþróttasamfélagið á Íslandi í gegnum unnusta sinn og barnsföður sem er íþróttamaður í fremstu röð, þó í annarri íþrótt. Frásögn hennar hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur og sjálf deildi hún henni í hringrás sinni á Instagram um helgina og „taggaði" Knattspyrnusamband Íslands með þeim skilaboðum að um væri að ræða ábendingu til KSÍ.
KSÍ Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Fótbolti Tengdar fréttir Klara Bjartmarz ætlar að halda áfram Klara Bjartmarz hyggst halda áfram sem framkvæmdastjóri KSÍ eftir að ný stjórn sambandsins tekur við. Stjórn KSÍ hefur tilkynnt að hún ætli að stíga til hliðar í kjölfar umfjöllunar um viðbrögð sambandsins við ásökunum um ofbeldi af hendi landsliðsmanna. 30. ágúst 2021 22:27 Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39 Guðni Bergsson segir af sér Guðni Bergsson hefur sagt starfi sínu sem formaður KSÍ lausu. Hann var kosinn formaður fyrst árið 2017. 29. ágúst 2021 16:52 Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Sjá meira
Klara Bjartmarz ætlar að halda áfram Klara Bjartmarz hyggst halda áfram sem framkvæmdastjóri KSÍ eftir að ný stjórn sambandsins tekur við. Stjórn KSÍ hefur tilkynnt að hún ætli að stíga til hliðar í kjölfar umfjöllunar um viðbrögð sambandsins við ásökunum um ofbeldi af hendi landsliðsmanna. 30. ágúst 2021 22:27
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39
Guðni Bergsson segir af sér Guðni Bergsson hefur sagt starfi sínu sem formaður KSÍ lausu. Hann var kosinn formaður fyrst árið 2017. 29. ágúst 2021 16:52