Hlýtt loft ættað suður úr höfum yfir landinu Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2021 07:09 Mun svalara veður sunnan- og vestanlands þar sem hiti verður á bilinu níu til fjórtán gráður. Vísir/Vilhelm Fremur hægar suðlægar áttir verða ríkjandi í dag og víða verður þungbúið, en bjartara austast á landinu. Birtir heldur til norðaustan- og austanlands þegar líður á daginn, en áfram skýjað og úrkomulítið um landið vestanvert.
Á vef Veðurstofunnar segir að hlýtt loft ættað suður úr höfum sé nú yfir landinu og megi búast við að hiti fari yfir tuttugu gráður sums staðar norðaustan- og austanlands í dag og þá einkum í innsveitum. Við sjávarsíðuna geta þokubakkar hins vegar verið á sveimi. „Mun svalara veður sunnan- og vestanlands þar sem hiti verður á bilinu 9 til 14 gráður. Bætir heldur í vind um landið norðvestanvert og syðst á landinu á morgun, en annars má búast við mjög svipuðu veðri og í dag. Áfram hlý suðvestlæg átt á landinu á fimmtudag, en úrkomumeira vestantil á landinu, einkum á Vestfjörðum og við Breiðafjörð.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Hægt vaxandi suðvestlæg átt og skýjað um landið V-vert, annars bjart með köflum. Suðvestan 5-13 m/s um kvöldið og dálítil væta vestast. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast NA-lands. Á fimmtudag: Suðvestan 5-13, skýjað og dálítil rigning vestantil, en annars bjart að mestu. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast í innsveitum suðaustan- og austanlands. Á föstudag: Suðlæg átt og skýjað að mestu, en léttskýjað norðan- og austantil. Hiti 11 til 23 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag og sunnudag: Suðaustlæg átt og rigning með köflum um landið sunnan- og vestanvert, annars þurrt og bjart að mestu. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir vaxandi suðaustan- og austanátt með rigningu í flestum landshlutum. Kólnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira