Vantaði bara eina stoðsendingu til að ná meti pabba síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2021 12:31 Dagur Kár Jónsson í leik með Grindavíkurliðinu. Hann hækkaði sig um 9 stig og 8 stoðsendingar frá því í leik eitt. Vísir/Bára Dagur Kár Jónsson var allt í öllu þegar Grindvíkingar jöfnuðu einvígið á móti Stjörnunni í átta liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta í gærkvöldi. Dagur Kár var með 21 stig og 13 stoðsendingar í 101-89 sigri Grindavíkurliðsins en alls skilaði hann 33 framlagsstigum til síns liðs. Dagur Kár setti þarna persónulegt stoðsendingamet í úrslitakeppni en hann var líka mjög nálægt því að jafna félagsmet föður síns Jóns Kr. Gíslasonar. Jón Kr. er áfram sá Íslendingur sem hefur gefið flestar stoðsendingar í einum leik í úrslitakeppni fyrir Grindavík en sjálft félagsmetið í úrslitakeppni á Warren Peebles sem gaf sextán slíkar í þríframlengdum leik á móti Keflavík árið 1999. Jón Kr. gaf mest fjórtán stoðsendingar í leik með Grindavík í úrslitakeppni en sá leikur var á móti Skallagrími í Röstinni í Grindavík 9. mars 1997. Dagur Kár var þá nýbúinn að halda upp á tveggja ára afmælið sitt. Jón Kr. er ansi áberandi á topplistanum en Dagur Kár stakk sér inn á milli nokkra stoðsendingaleikja föður síns með þessari frammistöðu í gær. Dagur skoraði líka 21 stig í leiknum í gær en pabbi hans var aðeins með þrjú stig þegar hann setti stoðsendingametið.
Dagur Kár var með 21 stig og 13 stoðsendingar í 101-89 sigri Grindavíkurliðsins en alls skilaði hann 33 framlagsstigum til síns liðs. Dagur Kár setti þarna persónulegt stoðsendingamet í úrslitakeppni en hann var líka mjög nálægt því að jafna félagsmet föður síns Jóns Kr. Gíslasonar. Jón Kr. er áfram sá Íslendingur sem hefur gefið flestar stoðsendingar í einum leik í úrslitakeppni fyrir Grindavík en sjálft félagsmetið í úrslitakeppni á Warren Peebles sem gaf sextán slíkar í þríframlengdum leik á móti Keflavík árið 1999. Jón Kr. gaf mest fjórtán stoðsendingar í leik með Grindavík í úrslitakeppni en sá leikur var á móti Skallagrími í Röstinni í Grindavík 9. mars 1997. Dagur Kár var þá nýbúinn að halda upp á tveggja ára afmælið sitt. Jón Kr. er ansi áberandi á topplistanum en Dagur Kár stakk sér inn á milli nokkra stoðsendingaleikja föður síns með þessari frammistöðu í gær. Dagur skoraði líka 21 stig í leiknum í gær en pabbi hans var aðeins með þrjú stig þegar hann setti stoðsendingametið. Flestar stoðsendingar Íslendinga í einum leik í úrslitakeppni hjá Grindavík: 14 - Jón Kr. Gíslason á móti Skallagrími 9. mars 1997 13 - Dagur Kár Jónsson á móti Stjörnunni 18. maí 2021 12 - Jón Kr. Gíslason á móti Njarðvík 20. mars 1997 12 - Jón Kr. Gíslason á móti Keflavík 3. apríl 1997 10 - Jón Kr. Gíslason á móti Njarðvík 18. mars 1997 10 - Arnar Freyr Jónsson á móti Snæfelli 28. mars 2009 10 - Arnar Freyr Jónsson á móti Snæfelli 29. mars 2010 10 - Jón Axel Guðmundsson á móti KR 17. mars 2016
Flestar stoðsendingar Íslendinga í einum leik í úrslitakeppni hjá Grindavík: 14 - Jón Kr. Gíslason á móti Skallagrími 9. mars 1997 13 - Dagur Kár Jónsson á móti Stjörnunni 18. maí 2021 12 - Jón Kr. Gíslason á móti Njarðvík 20. mars 1997 12 - Jón Kr. Gíslason á móti Keflavík 3. apríl 1997 10 - Jón Kr. Gíslason á móti Njarðvík 18. mars 1997 10 - Arnar Freyr Jónsson á móti Snæfelli 28. mars 2009 10 - Arnar Freyr Jónsson á móti Snæfelli 29. mars 2010 10 - Jón Axel Guðmundsson á móti KR 17. mars 2016
Dominos-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira