Viðskipti innlent

Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair

Eiður Þór Árnason skrifar
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur meðan á yfirfærslunni stendur.
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur meðan á yfirfærslunni stendur. kvika

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður.

Þar má nefna yfirgripsmikla fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair á síðasta ári sem lauk með hlutafjárútboði en einnig hefur hún leitt fjármálasvið félagsins í gegnum mikið umbreytingarferli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 

Ívar tekur við 

Ívar Sigurður Kristinsson hefur tímabundið verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair Group og tekur nú þegar sæti í framkvæmdastjórn félagsins. 

Ívar hefur á undanförnum árum starfað hjá Icelandair, meðal annars sem framkvæmdastjóri flotamála og leiðakerfis félagsins og þar áður sem stjórnandi á fjár­mála­sviði. Hann var for­stöðumaður hjá Promens á ár­un­um 2006 til 2008 eftir að hafa starfað sem verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá árinu 2000, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Ívar er með M.Sc. gráðu í iðnaðar­verk­fræði frá Há­skóla Íslands og MBA-gráðu með áherslu á fjármál frá Uni­versity of North Carol­ina, Chap­el Hill.

Eva Sóley mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur meðan á yfirfærslunni stendur.

Erfið persónuleg ákvörðun

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að framlag Evu Sóleyjar hafi verið ómetanlegt í þeirri vegferð að koma félaginu í gegnum gríðarlega erfiðar aðstæður. 

„Um leið og við kveðjum Evu Sóleyju með söknuði, þá skiljum við þessa persónulegu ákvörðun hennar. Þá býð ég Ívar velkominn í nýtt hlutverk. Hann þekkir félagið mjög vel og hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á flugrekstri en hann hefur meðal annars verið í lykilhlutverki í fjármögnun og mótun flotastefnu félagsins á undanförnum árum,“ er haft eftir Boga í tilkynningu.

Eva Sóley segir að um hafi verið að ræða erfiða ákvörðun.

„Ég er ákaflega stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir þetta einstaka félag með framúrskarandi stjórnendateymi og starfsfólki á þessum fordæmalausum tímum sem félagið hefur gengið í gegnum á meðan ég hef gegnt hlutverki framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Ég hef ákveðið að skipta um takt á þessum tímapunkti og hef því tekið þá erfiðu ákvörðun að segja skilið við félagið. Ég óska samstarfsfólki mínu og félaginu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með félaginu áfram sem stoltur hluthafi,“ segir hún í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Þóra fer frá Icelandair yfir til Play

Þóra Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play. Mun hún bera ábyrgð á að byggja upp fjármálasvið flugfélagsins sem og að leiða skráningu Play á Nasdaq First North Iceland markaðinn. 

Erla Ósk færir sig um set í hótelbransanum

Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur látið af störfum sem forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Icelandair hótelum eftir rúmlega sex ára starf. Hún tekur við sem forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition, hóteli við hliðina á Hörpu.

Tap Icelandair tæpir fjórir milljarðar á fyrsta ársfjórðungi

Heildartekjur Icelandair drógust saman um 73 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og námu 7,3 milljörðum króna. Lækkun tekna er helst rakin til heimsfaraldurs covid-19 sem hélt áfram að hafa gríðarleg áhrif á starfsemi félagsins en sætaframboð dróst saman um 92 prósent á milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Vegna áframhaldandi óvissu í ljósi heimsfaraldursins mun félagið ekki gefa út afkomuspá fyrir árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×