Veður

Áfram hægur vindur og bjart veður

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu eitt til níu stig, en víða frost í nótt.
Hiti verður á bilinu eitt til níu stig, en víða frost í nótt. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan reiknar með hægum vindi og björtu veðri, en smáskúrum á víð og dreif sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu eitt til níu stig, en víða frost í nótt.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að það verði austlæg eða breytileg átt á morgun, gola eða kaldi.

„Víða skúraleiðingar, en að mestu þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 3 til 9 stig.

Á föstudag er útlit fyrir svipað veður áfram.“

Veðurspáin fyrir klukkan 13 í dag.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag (uppstigningardagur) og föstudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir eða slydduél, en yfirleitt þurrt á NA- og A-landi. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag: Norðaustan 5-13 m/s. Skýjað og sums staðar dálítil él á N- og A-landi, en bjart með köflum S- og V-lands. Hiti 1 til 9 stig yfir daginn, mildast SV-til en víða næturfrost.

Á sunnudag: Norðaustan, skýjað og lítilsháttar rigning eða slydda á NA- og A-landi. Hiti breytist lítið.

Á mánudag og þriðjudag: Norðaustanátt með rigningu eða slyddu N- og A-lands, en úrkomulítið á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×