Veður

Hiti jafn­vel yfir tíu stigum sunnan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Sólskinsveður var á suðvesturhorni landsins og víðar í gær.
Sólskinsveður var á suðvesturhorni landsins og víðar í gær. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir fremur hæga vestlæga eða breytilega átt á landinu í dag. Skýjað verður að mestu um landið vestanvert og sums staðar gæti orðið vart við smásúld eða þokuloft. Þurrt og bjart í öðrum landshlutum.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði víða fimm til tíu stig yfir daginn og jafnvel rúmlega það sunnanlands.

„Á morgun er síðan spáð norðlægri átt, víðast hvar 3-8 m/s, en 8-13 með austurströndinni. Yfirleitt bjart og fallegt veður á Suður- og Vesturlandi með hita 7 til 12 stig að deginum. Skýjað og lítilsháttar él eða skúrir norðaustantil á landinu og hiti þar ekki nema 0 til 4 stig.“

Spákortið fyrir klukkan 13 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 með austurströndinni. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi með hita 7 til 12 stig yfir daginn. Lítilsháttar él norðaustantil á landinu og hiti 0 til 4 stig.

Á fimmtudag: Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en sums staðar dálítil væta sunnanlands. Hiti 3 til 8 stig að deginum.

Á föstudag: Gengur í norðaustan og austan 8-15 m/s. Él norðan- og austanlands, rigning eða slydda sunnanlands, en þurrt á Vesturlandi. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 6 stig á Suðurlandi.

Á laugardag: Norðaustan 8-15. Él norðan- og austanlands, en þurrt um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Austlæg átt. Bjartviðri um landið vestanvert og hiti að 8 stigum yfir daginn, en skýjað austantil og hiti um eða yfir frostmarki.

Á mánudag: Norðaustanátt og lítilsháttar él á Norður- og Austurlandi með hita um frostmark, en léttskýjað sunnan heiða og hiti að 8 stigum yfir daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×