Veður

Vindur gæti náð 40 metrum á sekúndu í hviðum

Atli Ísleifsson skrifar
Gular viðvaranir taka gildi austan til síðar í dag.Mjög snarpar vindhviður, allt að 40 m/s. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni.
Gular viðvaranir taka gildi austan til síðar í dag.Mjög snarpar vindhviður, allt að 40 m/s. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni. Veðurstofan

Lægðin og snjókomubakkinn sem henni fylgdi er nú á leið austur og fjarlægist landið en skilur eftir hjá okkur norðan strekking eða allhvassann vind. Á Suðausturlandi og á Austfjörðum verður norðvestan hvassviðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sekúndu. 

Gular viðvaranir taka gildi austan til síðar í dag þar sem von er á mjög snörpum vindhviðum, allt að 40 metrum á sekúndu. Hefur fólk verið hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að eftir ofankomu næturinnar verður víða bjartviðri eða léttskýjað en þó verður nokkur él norðaustan- og austanlands fram á kvöld. Frost á landinu verður víðast á bilinu núll til átta stig.

Gular viðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og Austfjörðum um miðjan dag í dag og gilda fram á næsta morgun.

Í nótt lægir vestantil en áfram verður nokkur strengur austast á morgun.

Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðvestan og vestan 5-10 m/s en 10-18 austast fram eftir degi. Víða léttskýjað en stöku él við vesturströndina. Frost 0 til 7 stig að deginum.

Á laugardag: Suðvestan 5-10 m/s. Dálítil snjókoma eða rigning um landið vestanvert með hita um eða yfir frostmarki, en bjartviðri austantil og frost 0 til 6 stig.

Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands en annars él. Hiti um frostmark.

Á mánudag: Fremur hæg norðaustlæg átt og léttskýjað en él með norður- og austurströndinni. Hiti 0 til 6 stig að deginum.

Á þriðjudag: Norðaustanátt með snjókomu en þurrt að kalla suðvestantil. Heldur kólnandi.

Á miðvikudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum um landið norðanvert en björtu veðri syðra. Kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×