Innlent

Skilinn eftir í lífshættulegu ástandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karlmaðurinn var skilinn eftir í lífshættulegu ástandi á heimili sínu í Kópavogi.
Karlmaðurinn var skilinn eftir í lífshættulegu ástandi á heimili sínu í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Tæplega fimmtugur karlmaður búsettur í Kópavogi hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás fimmtudagskvöldið 23. apríl í fyrra. Árásin átti sér stað utan við og inni í húsnæði í bæjarfélaginu þar sem fórnarlambið bjó.

Karlmaðurinn er sakaður um að hafa veist að öðrum karlmanni á fimmtugsaldri, veitt honum að minnsta kosti eitt högg í höfuð og hrint. Afleiðingarnar voru þær að karlmaðurinn féll aftur fyrir sig og skall í gólfið. Hlaut hann stóra níu millímetra blæðingu hægra megin í höfði, litlar blæðingar í heilavef framan til og litla blæðingu ásamt fjölda brota í höfuðkúpunni og nefbeinabrot.

Brotið telst varða við aðra málsgrein 218. greinar almennra hegningarlaga sem fjallar um alvarlegar líkamsárásir en brot á lögunum varða allt að sextán ára fangelsi.

Tvö vitni sökuð um að gera ekki neitt

Rúmlega sextugur karlmaður, búsettur í Reykjavík, sem varð vitni að átökunum er ákærður fyrir að hafa látið farast fyrir að koma manninum til bjargar. Þannig hafi hann í kjölfar atlögunnar skilið karlmanninn eftir liggjandi frammi á gangi húsnæðisins og yfirgefið hann ósjálfbjarga og lífshættulega slasaðan án þess að koma honum til bjargar.

Þriðji maður varð sömuleiðis vitni að atlögunni en ákæra á hendur honum var látin niður falla þar sem hann féll frá á meðan meðferð málsins stóð.

Farið er fram á sjö milljónir króna í miskabætur til mannsins sem slasaðist lífshættulega í árásinni.

Í lífshættu eftir árásina

Fjallað var um árásina í fjölmiðlum í apríl í fyrra í samhengi við að önnur alvarleg líkamsárás var gerð í Breiðholti í Reykjavík sama kvöld. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn sagði fórnarlambið í málinu í lífshættu daginn eftir árásina. 

Vikurnar á undan hefðu verið óvenju margar árásir á höfuðborgarsvæðinu og útilokaði hann ekki að það tengdist ástandinu vegna kórónuveirunnar.

„Ég verð bara að segja að við höfum talsverðar áhyggjur af þessari þróun sem er að birtast í okkar tölum og okkar verkefnum. Hvort við getum endilega tengt það við Covid eða það ástand sem er í þjófélaginu í dag, það kannski treystum við okkur ekki til að fullyrða akkúrat núna, eða hvort það ástand sé að leysa úr læðingi þá þróun sem okkur sýnist að hafa verið að byrja um áramótin,“ sagði Karl Steinar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×