Bauðst til að borga táningsstúlku til að sleppa við kæru Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. mars 2021 14:55 Karlmaðurinn hafði sent konunni mynd af getnaðarlimi sínum áður en hann fékk myndsendingu til baka. Vísir/Vilhelm Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið gegn blygðunarsemi táningsstúlku. Birti hann kynferðislega mynd af henni á vefsíðu ásamt nafni hennar og upplýsingum um notendanafn hennar á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Karlmaðurinn neitaði sök en var þó tilbúinn til að greiða stelpunni fyrir að draga kæru til baka og sagðist óttast að barn hans yrði tekið af honum. Karlmaðurinn var í samskiptum við stúlkuna árið 2016 og sendi hún honum þá nektarmynd af sér á Snapchat eftir ítrekaðar áskoranir þess efnis, að hennar sögn. Karlmaðurinn tók skjáskot af myndinni á síma sinn en stúlkan bað hann um að gera það ekki. Samskiptum þeirra lauk í framhaldinu. Óvænt og ljót skilaboð Það var svo í júní 2019 sem unga konan fór óvænt að fá ljót skilaboð frá karlmönnum. Vinkona hennar benti henni á vefsíðuna og þar sagðist hún hafa séð myndina af sér. Það var svo í júní 2019 sem unga konan sá myndina af sér á vefsíðu og í framhaldinu hefði hún fengið fjölda skilaboða frá körlum og þeir boðið henni greiðslu fyrir kynmök. Hún hefði farið inn á gamla notendanafn sitt á Snapchat, sem hún hafði ekki notað í langan tíma, og þar hefðu verið fullt af skilaboðum og karlmenn að reyna að vingast við hana. Nánar tiltekið hafi beðið hennar 800 vinabeiðnir frá karlmönnum. Myndin sem birt var sýndi líkama stúlku að neðanverðu nokkurn veginn upp að brjóstum. Við myndina var skrifað: Einhverjar ungar 03-06 að selja sig? Við myndina voru skrifaðar fimm athugasemdir hvort fleiri nektarmyndir væru til af stelpunni og hvort hún væri að selja sig. Hefði engum öðrum sent myndina Stúlkan leitaði til lögreglu daginn eftir og kærði karlmanninn. Hún sagðist ekki eiga myndina enda hefði hún tekið hana með Snapchat svo myndin hefði eyðst. Hún hefði engum öðrum sent myndina. Hún lýsti því að hafa sett sig í samband við ákærða sem hefði neitað að hafa sett myndina inn. Í september 2019 hefði hann hins vegar haft samband við hana og beðið hana um að draga kæruna til baka. Fyrir það væri hann tilbúinn að greiða 50 þúsund krónur. Hún sagðist hafa verið meðvirk, fundið til með honum og svo hefði það farið alveg með hana þegar hann fór að tala um að vegna málsins yrði dóttir hans tekin af honum. Hún hefði farið til lögreglu í þeim tilgangi en henni tjáð að það væri ekki undir henni komið. Í framhaldinu hefði hann ítrekað hringt í hana úr leyninúmeri en hún ekki svarað. Eini sinni hefði hún svarað en skellt á. Hann hefði þá hringt úr venjulegu númeri og sent SMS. Hún sagðist hafa fengið sér nýtt símanúmer vegna þessa. Unga konan sagði atvikið hafa haft mikil áhrif á hana, hún hafi einangrað sig, vantreyst fólki og upplifað áreiti eftir birtingu myndarinnar. IP-talan lykilsönnunargagn Lögreglumaður sem rannsakaði málið komst að því að IP-tala þess sem setti myndina inn á síðuna var í eigu ákærða. Sömuleiðis hefðu fjórar athugasemdir af fimm við myndina verið settar inn af sömu IP-tölu. Karlmaðurinn sagðist hafa haldið partý kvöldið sem myndin var sett inn á síðuna og hvaða gestur í partýinu sem er hefði getað farið í tölvu hans eða notað nettenginguna og hlaðið upp myndinni. Hann hafði þó ekki skýringar á dagsetningunum þegar athugasemdir voru skrifaðar við myndina, sem sneru að ósk um fleiri nektarmyndir, sem voru úr sömu IP-tölu. Aðspurður hvers vegna hann hefði boðist til að greiða konunni peninga, sálfræðiþjónustu eða styrkja Stígamót ef hann hefði ekkert gert sagðist hann hljóta að hafa gert eitthvað á hennar hlut. Honum væri mikið í mun að losna undan kærunni. Þessar skýringar taldi dómurinn ekki trúverðugar. Ekki heldur skýringar um að tölva hans hefði verið hökkuð og sími hans ekki skilað sér úr viðgerð. Framburður ungu konunnar var stöðugur frá upphafi varðandi aðalatriði. Hún kærði málið til lögreglu um leið og hún sá myndina á vefsíðunni árið 2019 og ræddi við ákærða. Nafn hennar og notendanafn á Snapchat fylgdu myndinni. Þannig taldi dómurinn óumdeilt að sá sem setti myndina á síðuna gerði ráð fyrir að myndin væri af henni eða vildi tengja hana við konuna. Taldi dómurinn sannað að um mynd af ungu konunni var að ræða og sömuleiðis að ákærði hefði sett myndina inn ásamt texta. Brotið var talið varða 209. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um lostug athæfi sem særi blygðunarsemi manna eða eru til opinbers hneykslis. Þótti fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi hæfileg refsing fyrir manninn auk 350 þúsund króna miskabótagreiðslu til ungu konunnar.
Kynferðisofbeldi Samfélagsmiðlar Dómsmál Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Sjá meira