Fyrirtækið endurvinnur plast með umhverfisvænum orkugjöfum. Jarðvarminn er þar í aðalhlutverki en í endurvinnslunni er plastúrgangi breytt í plastperlur sem seldar eru til framleiðslu á nýjum plastvörum. Sem dæmi um hversu öfugsnúnir hvatarnir eru, nefnir Áslaug Hulda heyrúlluplast.
Nú vantar okkur heyrúlluplast til að endurvinna. En vegna þess hvernig kerfið er uppbyggt er staðan enn þannig að megnið af heyrúlluplasti er flutt óunnið úr landi í stað þess en endurvinna það hér heima.“
Pure North er eitt þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem stofnað var áratuginn eftir bankahrun, eða árið 2015. Aðferð endurvinnslunnar er íslensk uppfinning og einstök á heimsvísu. Fyrirtækið er í eigu Sigurðar Halldórssonar, stofnanda og framkvæmdastjóra, Áslaugar Huldu Jónsdóttur og Katrínar Pétursdóttir sem jafnframt er stjórnarformaður. Þá á Lýsi hf. hlut í félaginu.
Endurvann timbur en nú plast
Á síðustu árum hafa miklar breytingar orðið á plastmarkaði. Ekki síst í kjölfar þess að Kína og fleiri ríki í Asíu hættu að taka við plastúrgangi frá Vesturlöndum. Eftir það, komust þjóðir ekki upp með að horfa í hina áttina og meira fór að heyrast um plastendurvinnslu eða að draga úr notkun plasts.
Það sem gerir endurvinnsluaðferð Pure North svo einstaka er að jarðvarminn sé notaður. Það þýðir að endurvinnslan notar engin kemísk efni, heldur aðeins gufu, vatn og rafmagn. Jarðgufan er þá notuð til að hita upp loftið, sem þurrkar plastið eftir þvott. Afall gufunnar er svo notað við þvottinn þegar hún þéttist.

Hugmyndasmiður endurvinnslunnar er Sigurður Halldórsson stofnandi.
„Áður en Sigurður stofnaði Pure North endurvann hann timbur með sambærilegum aðferðum sem hann síðan þróaði áfram með plastinu,“ segir Áslaug Hulda.
Til að setja starfsemina í samhengi við markmið Íslands í loftlagsmálum má nefna að fyrir hvert tonn sem endurunnið er af plasti, sparast 1,8 tonn af olíu. Við það bætist síðan umhverfisávinningurinn við innlenda endurvinnslu og aðferðum Pure North.
Að nýta jarðvarmann í baráttuna við loftlagsmálin hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Sem dæmi má nefna ítarleg og myndræn umfjöllun sem birt var í The Guardian fyrir stuttu, meðal annars um starfsemi Pure North.

Draumurinn er Ísland
Áslaug Hulda segir viðskiptavini fyrirtækisins flesta vera erlend fyrirtæki sem sérhæfa sig í framleiðslu á vörum úr endurunnu plasti, sem Pure North gerir þá langtímasamninga við.
Endurunna plastið okkar er til dæmis orðið að garðhúsgögnum, pallaefni, ruslapokum og skjólgirðingum,“
segir Áslaug Hulda.
Hún segir drauminn vera að selja eitthvað af þessum endurunnu vörum á Íslandi.
„Síðan er mikill hugur hjá íslenskum framleiðendum og spennandi verkefni í þróun. Okkar draumur er að allt okkar plast fari í framleiðslu hér á Íslandi.“
Að auka við íslenska framleiðslu getur alveg verið framtíðarsýn í augsýn því á dögunum gerði Pure North og Háskólinn í Reykjavík með sér samstarfssamning. Hann felur meðal annars í sér að eiginleikar endurunnins plasts verða rannsakaðir og möguleikar þess til vöruþróunar og framtíðarnotkunar.
Í lok haustannar 2020 tók Pure North þátt í kennslu í þriggja vikna námskeiði í HR fyrir fyrsta árs nema í verkfræði. Þar unnu nemendur verkefni um endurvinnslu og endurnýtingu plasts.
Á námskeiðinu komu margar áhugaverðar hugmyndir fram hjá nemendum. Til dæmis hugmyndir um niðurbrjótanleg fiskinet, fjölfylliflöskur fyrir gos og hugmyndir að kvótakerfi um plastnotkun í byggingariðnaði.

Covid hefur haft áhrif
Pure North setti af stað landsátakið Þjóðþrif, en verkefninu ætlað að vekja athygli á nauðsyn þess að Íslendingar sem þjóð taki ábyrgð á eigin endurvinnslu og tryggi að endurnýtanleg hráefni verði hluti af hringrásarhagkerfi Íslands.
Til að setja mikilvægi verkefnisins í samhengi, má benda á að nú þegar er plastmengunin að hafa mikil áhrif á hafið, sem aftur hefur mikil áhrif á atvinnugreinar eins og sjávarútveginn. Fyrir Íslendinga er endurvinnsla plasts því þjóðþrifamál. Þá hafa greiningar sýnt að mikill hluti plasts sem rekur á fjörur Íslands, er íslenskt plast. Ábyrgð atvinnuliífs, stjórnvalda og neytenda er því mikil.
Síðustu mánuði hefur Covid hægt á framþróun mála, þar sem heimsfaraldurinn hefur haft sín áhrif að hluta til skyggt á baráttuna við loftlagsbreytingar.
Áslaug Hulda segist þó vongóð um að á nýju ári séu hjólin aftur farin að snúast hraðar af stað.
Líkt og hjá öðrum atvinnugreinum þá hægðist á sölu í kringum kófið enda lokuðu landamæri, það hægðist á heiminum! Í dag er komin meiri hreyfing á markaði og við höfum tryggt okkur góða sölusamninga enda er mikil eftirspurn eftir plastinu frá okkur sem er umhverfisvænasta plast í heimi,“
segir Áslaug Hulda.