Glæsimark Hakimi dugði ekki til í stórleiknum Anton Ingi Leifsson skrifar 10. janúar 2021 13:26 Hakimi fagnar markinu með Lautaro Martinez og Romelu Lukaku kemur askvaðandi. Claudio Villa/Getty Lorenzo Pellegrini kom Roma yfir á sautjándu mínútu. Arkitektinn var Henrikh Mkhitaryan en hann hefur farið á kostum á tímabilinu. Staðan 1-0 í leikhléi. Króatinn Milan Skriniar jafnaði metin á 56. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði Achraf Hakimi annað markið. Markið var einkar fallegt en vinstri fótar skot hans fór í slá og inn. Það reyndist þó ekki sigurmarkið þar sem Gianluca Mancini skoraði jöfnunarmarkið á 86. mínútu og lokatölur 2-2. Staða liðanna er því að mestu óbreytt eftir leikinn. Inter er með 37 stig, þremur stigum frá toppliði AC Milan, en Roma er í þriðja sætinu með 34 stig. Ítalski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn