Erlent

Búin var til við­bragðs­á­ætlun létist Boris af Co­vid-19

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Búin var til viðbragðsáætlun ef ske kynni að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, dæi vegna Covid-19.
Búin var til viðbragðsáætlun ef ske kynni að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, dæi vegna Covid-19. EPA/ANDREW PARSONS

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir að viðbragðsáætlun hafi verið búin til ef ske kynni að hann létist vegna Covid-19. Johnson lá fárveikur inni á gjörgæslu vegna sjúkdómsins.

Hann sagði að á tímabili hafi verið helmingslíkur á því að hann hefði þurft að fara í öndunarvél í viðtali við tímaritið Sun í dag. „Þetta var mjög erfitt augnablik, ég neita því ekki,“ bætti hann við.

Hann sagði að læknarnir hans hafi búið til viðbragðsáætlun ef hann félli frá. „Þeir voru með áætlun til að fara eftir ef upp kæmu aðstæður eins og þegar Stalín dó,“ sagði hann og vísaði til fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, Jóseps Stalín.

Johnson sagði að sér hafi verið gefnir tugir lítra af súrefni til að halda sér á lífi og sagði góðan bata sinn mega rekja til góðrar hjúkrunar. „Ég verð klökkur þegar ég hugsa til þess… en þetta var magnað.“

Johnson greindist með Covid-19 þann 26. Mars og var hann lagður inn á sjúkrahús tíu dögum síðar. Sólarhring seinna var hann lagður inn á gjörgæslu. „Það var erfitt að trúa því að á aðeins nokkrum dögum hafi heilsa mín hrakað svo mikið,“ sagði hann.

Johnson hefur lofað heilbrigðisstarfsfólk í bak og fyrir eftir að honum batnaði af sjúkdómnum. Hann og Carrie Symonds, unnusta hans, skírðu nýfæddan son þeirra Wilfred Lawrie Nicholas, að hluta í höfuð tveggja lækna sem parið segir hafa bjargað lífi forsætisráðherrans.


Tengdar fréttir

Johnson og Symonds eignuðust dreng

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Carrie Symonds, unnusta hans, hafa eignast son. Sá fæddist á sjúkrahúsi í London í morgun og heilsast öllum sem að koma vel.

Johnson vill ekki slaka á takmörkunum strax

Árangri sem breska þjóðin hefur náð í að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar með fórnum verður ekki kastað fyrir róða með því að slaka á takmörkunum of snemma, að sögn Boris Johnson, forsætisráherra Bretlands. Ekki sé ljóst hvenær verði hægt að opna hagkerfið frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×