Erlent

Breska þingið samþykkir viðskiptasamning við ESB

Samúel Karl Ólason og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa
Samkomulag um viðskiptasamning Breta og ESB náðist á aðfangadag eftir tíu mánaða viðræður.
Samkomulag um viðskiptasamning Breta og ESB náðist á aðfangadag eftir tíu mánaða viðræður. AP/Frank Augstein

Breska þingið samþykkti nú rétt í þessu viðskiptasamning breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. 521 þingmaður greiddi atkvæði með samningnum en 73 gegn honum.

Samningurinn mun taka gildi strax um áramótin en Bretar yfirgefa þá innri markað sambandsins og tollabandalagið. Í dag mun framkvæmdastjórn og leiðtogaráð ESB skrifa undir samninginn.

Samkomulag um viðskiptasamning Breta og ESB náðist á aðfangadag eftir tíu mánaða viðræður. Samningurinn er um 1.200 blaðsíður að lengd.

Þingmenn voru kallaðir úr fríi til að gera samninginn að lögum einungis einum degi áður en Bretland hættir að fylgja reglum ESB. Næst fer samningurinn fyrir lávarðadeildina og þar á eftir til drottningarinnar.

BBC hefur eftir Boris Johnson, forsætisráðherra, að með þessum samningi fá Bretar að eiga köku sína og borða hana einnig, eins og það er orðað. Hann heldur því fram að samkomulagið feli í raun í sér frjálsa verslun milli Bretlands og ESB en viðurkennir að breytingar muni eiga sér stað hjá breskum fyrirtækjum.

Þó samningurinn hafi farið í gegnum þingið með miklum meirihluta eru ekki allir sáttir við hann. Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði þingmönnum sínum að greiða atkvæði með samningnum en sagði að það væri eingöngu vegna þess að enginn samningur væri verri niðurstað.

Sky News hefur eftir Starmer að samningurinn innihéldi marga galla og vankanta.


Tengdar fréttir

Copy/Paste í Brexit-díl: Nýr samningur, úreltur texti

Grunur leikur á að kaflar í nýjum samningi Bretlands og Evrópusambandsins hafi verið teknir í heilu lagi úr gömlum lögum eða samningum, þar sem í þeim má finna tilvísanir í úrelta tækni á borð við Netscape Communicator og 1024-bita RSA dulkóðun.

Brexit-samningur í höfn

Samkomulag um útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu er í höfn eftir að samninganefndir Evrópusambandsins og Breta náðu samkomulagi í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×