Stinningskaldi og snjókoma í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. nóvember 2020 07:21 Hitaspákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 12 í dag sýnir að það verður heldur kalt um allt land. Veðurstofa Íslands
Það er spáð norðaustanátt í dag, víða kalda og stinningskalda, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá verður léttskýjað vestantil á landinu en dálítil snjókoma austanlands þegar kemur fram á daginn. Frost yfirleitt á bilinu núll til átta stig en það hlánar við suðaustur- og austurströndina. Á morgun er svo spáð norðlægari vindi, skýjuðu veðri og lítilsháttar snjókomu á Norður- og Austurlandi. Hiti um eða undir frostmarki. Vindur á síðan að vera hægari á miðvikudag, bjart veður og kalt en þykknar upp vestanlands með vaxandi suðaustanátt síðdegis. Um kvöldið er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi með slyddu eða rigningu um landið vestanvert. Veðurhorfur á landinu: Gengur í norðaustan 8-15 í dag. Dálítil snjókoma eða él A-lands, en bjartviðri vestantil. Frost 0 til 8 stig, en víða frostlaust við SA- og A-ströndina seinni partinn. Norðlæg átt 5-13 á morgun, skýjað og lítilsháttar snjókoma eða él á N- og A-landi. Hiti um eða undir frostmarki. Á þriðjudag: Norðlæg átt 5-13 m/s, skýjað og dálítil snjókoma eða él N- og A-lands. Hiti kringum frostmark, en kólnar seinni partinn. Á miðvikudag: Hæg vestlæg átt og bjart með köflum, frost 2 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa V-lands síðdegis, hvassviðri eða stormur og rigning eða slydda V-til á landinu seint um kvöldið. Á fimmtudag: Sunnanátt og rigning eða slydda, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 2 til 7 stig. Vestlægari og él S- og V-til um kvöldið. Á föstudag og laugardag: Suðvestanátt og él, en þurrt á NA-verðu landinu. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Sjá meira