Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. nóvember 2020 23:27 Karldýrið er talið vera síðasti hvíti gíraffinn í heiminum. ISHAQBINI HIROLA COMMUNITY CONSERVANCY
Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma. Um er að ræða karldýr sem þjáist af sjaldgæfri genabreytingu sem kallast leucism en hún gerir það að verkum að ekkert litarefni er í feld skepnunnar. Í mars síðastliðnum drápu veiðiþjófar hvítt kvendýr og sjö mánaða gamlan kálf úr sömu fjölskyldu og óttast er að karldýrið muni mæta sömu örlögum. Hræ kvendýrsins og kálfsins fundust á verndarsvæði í Garissa-sýslu í Kenía, þar sem karldýrið dvelur nú einn. Hræ kvendýrsins og kálfsins fundust í mars sl. Þau höfðu verið drepin af veiðiþjófum.ISHAQBINI HIROLA COMMUNITY CONSERVANCY Það sást fyrst til hvítra gíraffa í Kenía í mars 2016, tveimur mánuðum eftir að þeir sáust í Tanzaníu. Ári síðar komust þeir aftur í fréttirnar þegar mynd náðist af móður og kálfi. Gíraffa er að finna í 15 Afríkuríkjum en þeir eru hæsta spendýr jarðar. Veiðiþjófar drepa dýrin og hirða feldinn, kjötið og ákveðna líkamshluta. Talið er að gíröffum hafi fækkað um 40% á síðustu þrjátíu árum, m.a. vegna veiðiþjófnaðar. Þeir telja nú um 68 þúsund skepnur á heimsvísu. BBC greindi frá.
Kenía Dýr Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira