Veður

Norðankaldi og él norðan- og austan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis.
Spáð er skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis. Veðurstofan

Spáð er norðan- og norðaustankalda og éljum norðan- og austanlands í dag og jafnvel skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis, en annars úrkomulaust að kalla. Hiti víða í kringum frostmark í dag.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að nokkuð dragi úr éljum á morgun og létti til fyrir sunnan og vestan og kólni í veðri.

„Hægir vindar, léttskýjað og kalt á miðvikudag, en á fimmtudag er spáð vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu suðvestan til um kvöldið og hækkandi hitatölum.

Veðurútlit helgarinnar er óljóst og látum það því kyrrt liggja að sinni,“ segir í tilkynningunni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðan 8-15 m/s og dálítil él á N- og A-landi, en annars léttskýjað. Frost 0 til 7 stig, minnst syðst.

Á miðvikudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og léttskýjað, en lítilsháttar él við A-ströndina fyrri part dags. Frost 2 til 9 stig.

Á fimmtudag: Hægviðri, víða léttskýjað og talsvert frost, en vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands síðdegis, slydda eða rigning þar um kvöldið og hlýnar.

Á föstudag: Ákveðin austan- og suðaustanátt og rigning eða slydda, en úrkomuminna fyrir norðan. Hlýnandi veður í bili.

Á laugardag: Útlit fyrir hvassa norðan- eða norðvestanátt með snjókomu fyrir norðan, en slyddu eða rigningu í öðrum landshlutum og kólnadi veður.

Á sunnudag: Líklega fremur hæg suðlæg átt og birtir víða til, en kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×