Mildur og rakur loftmassi berst yfir landið úr suðri Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2020 07:25 Víða er útlit fyrir suðaustan strekking með skýjuðu veðri og rigningu með köflum. Vísir/Vilhelm
Mildur og rakur loftmassi berst yfir landið úr suðri í dag þar sem víða er útlit fyrir suðaustan strekking, 8 til 15 metrar á sekúndu, með skýjuðu veðri og súld eða rigningu með köflum. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á Norðurlandi verði vindur heldur hægari og lítil eða engin úrkoma. Hlýna mun í veðri og mega landsmenn búast við 5 til 10 stiga hita síðdegis, þar sem væntanlega verður hlýjast fyrir norðan. „Á morgun er hægari vindur í kortunum, þá má búast við sunnan golu eða kalda með dálitlum skúrum eða slydduéljum, en bjart og fallegt veður á Norður- og Austurlandi. Það kólnar aftur og hiti á bilinu 1 til 6 stig á morgun. Annað kvöld er síðan gert ráð fyrir að úrkomusvæði hafi borist yfir allan austurhelming landsins með rigningu nærri ströndinni, en slyddu eða snjókomu inn til landsins.“ Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 5-10 m/s og dálitlir skúrir eða slydduél, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Austlægari um kvöldið með rigningu eða slyddu á austurhelmingi landsins. Hiti 1 til 6 stig. Á miðvikudag: Vestlæg átt 10-18 í fyrstu og talsverð rigning, slydda eða snjókoma. Hægari vindur og dálítil él vestanlands. Sunnan 5-10 síðdegis og él eða slydduél, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Gengur í allhvassa eða hvassa austanátt með rigningu eða slyddu, en hægari vindur og úrkomulítið norðanlands. Hiti 1 til 7 stig, mildast með suðurströndinni. Á föstudag: Suðlæg átt og væta með köflum, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Fremur hæg breytileg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda víða um land. Hiti 1 til 7 stig.
Veður Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira