2 dagar í Meistaradeildina: Gamlir og misvinsælir United-menn mæta aftur á Old Trafford Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2020 11:31 Ángel Di María þykist fá sér bjórsopa í leik Manchester United og Paris Saint-Germain í fyrra. getty/Marc Atkins
Meistaradeild Evrópu í fótbolta fer aftur af stað á þriðjudaginn þegar riðlakeppnin hefst með átta leikjum í riðlum E til H. Vísir ætlar að telja niður í Meistaradeildina og í dag skoðum við tvo leikmenn Paris Saint-Germain sem mæta sínu gamla félagi, Manchester United, í riðlakeppninni. Þeir munu væntanlega fá misjafnar móttökur á Old Trafford enda hafa stuðningsmenn United mjög svo ólíkar skoðanir á þeim. Fyrsti leikur United í H-riðli er gegn silfurliði Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili, Paris Saint-Germain. Þetta er í annað sinn á síðustu þremur tímabilum sem United og PSG mætast í Meistaradeildinni. Þau áttust við í 16-liða úrslitum keppninnar 2018-19 þar sem United sló PSG út á eftirminnilegan hátt. Ein af stórstjörnunum í liði PSG, Ángel Di María, lék með United tímabilið 2014-15. Miklar væntingar voru bundnar við hann enda hafði hann átt stóran þátt í því að Real Madrid varð Evrópumeistari vorið 2014 og komst svo alla leið í úrslit heimsmeistaramótsins með Argentínu þá um sumarið. United gerði Di María að dýrasta leikmanni í sögu félagsins með því að borga tæpar 60 milljónir punda fyrir hann. Og ef það var ekki nógu mikil pressa fékk hann hina goðsagnakenndu treyju númer sjö sem leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, David Beckham, George Best og Eric Cantona hafa klæðst. Di María fór vel af stað með United en dalaði svo og átti ekki fast sæti í byrjunarliðinu seinni hluta tímabils. Brotist var inn á heimili hans um veturinn og talið að það hafi átt sinn þátt í misjafnri spilamennsku Argentínumannsins. Di María var svo seldur til PSG sumarið 2015. Hann mætti aftur á Old Trafford fjórum árum seinna og lagði upp annað mark PSG í 0-2 sigri á United í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Di María fékk óblíðar móttökur frá Ashley Young, fyrirliða United, sem tæklaði hann harkalega. Sá argentínski kláraði samt leikinn, lagði upp mark fyrir Kylian Mbappé og reitti svo stuðningsmenn United til reiði þegar hann þóttist taka sopa af bjórflösku sem var kastað inn á völlinn. Stælarnir í Di María gerðu sigurinn í París enn sætari fyrir leikmenn og stuðningsmenn United. Ander Herrera kom til United á sama tíma og Di María og átti öllu betri tíma á Old Trafford en sá argentínski. Herrera lék með United í fimm tímabil en það besta var eflaust fyrsta tímabil José Mourinho, 2016-17. Ander Herrera fagnar eftir úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2017 þar sem Manchester United sigraði Ajax, 2-0.getty/Matthew Ashton Herrera vann þá deildabikarinn og Evrópudeildina með United. Hann lagði upp sigurmark United fyrir Zlatan Ibrahimovic í úrslitaleik deildabikarsins, þar sem liðið vann 3-2 sigur á Southampton, og var svo valinn maður leiksins í úrslitum Evrópudeildarinnar þar sem United vann Ajax, 2-0. Herrera var svo valinn leikmaður ársins hjá United þetta tímabil. Herrera lék alls 189 leiki fyrir United og skoraði 20 mörk. Hann var nokkuð vinsæll hjá stuðningsmönnum United fyrir baráttugleði og ófyrirleitna nálgun þótt það hafi ekki allir verið sáttir með hvernig hann yfirgaf félagið. Herrera kom á frjálsri sölu til PSG síðasta sumar. Á síðasta tímabili varð hann franskur meistari með PSG og komst í úrslit Meistaradeildarinnar með liðinu. Herrera gaf United óhefðbundna stoðsendingu á dögunum þegar hann sannfærði Edinson Cavani um að ganga í raðir félagsins eftir að samningur hans við PSG var ekki framlengdur. Edinson Cavani said a last-minute conversation with Ander Herrera helped convince him to join Manchester United.— Sky Sports (@SkySports) October 10, 2020 Herrera verður fjarri góðu gamni þegar PSG tekur á móti United á þriðjudaginn en verður væntanlega með í seinni leiknum á Old Trafford sem verður 2. desember. Meistaradeildin verður áfram í beinni á Stöð 2 Sport og þar verða líka Meistaradeildarmessan og Meistaradeildarmörkin á hverju kvöldi sem leikir fara fram í riðlakeppninni. Fyrstu leikirnir í beinni verða Dynamo Kiev-Juventus (Þriðjudagurinn 20. október klukkan 16.45) og PSG-Manchester United (Þriðjudagurinn 20. október klukkan 18.50).
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir 3 dagar í Meistaradeild: Liverpool krækti í hljómsveitarstjóra Evrópumeistaranna Liverpool tókst ekki að verja Meistaradeildartitil sinn en mætir til leiks í ár með ríkjandi Evrópumeistara í sínu liði. 17. október 2020 11:46 4 dagar í Meistaradeild: Bara að komast í úrslitaleikinn og þá er titillinn tryggður Real Madrid er sigursælasta félagið í Meistaradeildinni og hefur nú unnið sjö síðustu úrslitaleiki sína í keppninni. 16. október 2020 11:01 5 dagar í Meistaradeildina: Alfreð tryggði Olympiacos fyrsta sigurinn á Englandi Síðasta heimsókn Íslendings í Olympiacos til Englands var eftirminnileg í meira lagi. 15. október 2020 11:00 6 dagar í Meistaradeildina: Ronaldo og Messi mætast í fyrsta sinn fyrir jól Lionel Messi og Cristiano Ronaldo mætast í Meistaradeildinni fyrir áramót og það tvisvar sinnum. Það hefur aldrei gerst áður. 14. október 2020 10:31 7 dagar í Meistaradeildina: Fyrstu fullkomnu meistararnir Meistaradeildin í knattspyrnu fer af stað á nýjan leik á þriðjudaginn í næstu viku þegar riðlakeppnin hefst með átta leikjum í riðlum E til H. Vísir ætlar að telja niður í Meistaradeildina og í dag skoðum við magnaða meistara síðasta tímabils. 13. október 2020 11:00 Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Báðir þurfa bikar Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Brobbey braut hjörtu svarthvítra Tottenham - Nott. Forest | Bæði lið að berjast fyrir lífi sínu Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sjá meira
3 dagar í Meistaradeild: Liverpool krækti í hljómsveitarstjóra Evrópumeistaranna Liverpool tókst ekki að verja Meistaradeildartitil sinn en mætir til leiks í ár með ríkjandi Evrópumeistara í sínu liði. 17. október 2020 11:46
4 dagar í Meistaradeild: Bara að komast í úrslitaleikinn og þá er titillinn tryggður Real Madrid er sigursælasta félagið í Meistaradeildinni og hefur nú unnið sjö síðustu úrslitaleiki sína í keppninni. 16. október 2020 11:01
5 dagar í Meistaradeildina: Alfreð tryggði Olympiacos fyrsta sigurinn á Englandi Síðasta heimsókn Íslendings í Olympiacos til Englands var eftirminnileg í meira lagi. 15. október 2020 11:00
6 dagar í Meistaradeildina: Ronaldo og Messi mætast í fyrsta sinn fyrir jól Lionel Messi og Cristiano Ronaldo mætast í Meistaradeildinni fyrir áramót og það tvisvar sinnum. Það hefur aldrei gerst áður. 14. október 2020 10:31
7 dagar í Meistaradeildina: Fyrstu fullkomnu meistararnir Meistaradeildin í knattspyrnu fer af stað á nýjan leik á þriðjudaginn í næstu viku þegar riðlakeppnin hefst með átta leikjum í riðlum E til H. Vísir ætlar að telja niður í Meistaradeildina og í dag skoðum við magnaða meistara síðasta tímabils. 13. október 2020 11:00