Eðlilegt að starfsmenn verði skimaðir áður en þeir koma aftur til starfa Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. ágúst 2020 18:19 Álftamýrarskóli er einn skólanna þriggja. Reykjavíkurborg „
Ég tel að það sé mjög eðlilegt að áður en þeir komi til starfa fái þeir skimun þannig að þeir hafi öryggi fyrir því að það sé ekki neitt smit í þeim,“ segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Umræddir þeir eru starfsmenn Hvassaleitisskóla og Álftamýrisskóla sem eru nú í sóttkví eftir að starfsmaður sem gegnir skyldum í báðum skólum greindist með kórónuveirusmit. Helgi ræddi málin í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, þar sem hann var spurður um hvort farið yrði fram á að starfsmennirnir yrðu skimaðir fyrir veirunni áður en þeir mæta aftur til starfa að sóttkví lokinni. Skólasetningu sem átti að fara fram á morgun verið frestað til 2. september í Hvassaleitisskóla og til 7 september í Álftamýraskóla vegna smitsins en um 400 nemendur eru í skólunum. „Það eru eðlilega mikil vonbrigði hjá þessu fólki,“ segir Helgi um viðbrögð kennara, nemenda og foreldra við tíðindunum sem komu upp um helgina. Samkvæmt heimildum fréttastofu smitaðist viðkomand starfsmaður í hópsýkingunni á Hótel Rangá í síðustu viku þar sem einn starfsmaður og tíu gestir smituðust af kórónuveirunni. „Kennarar sem voru við störf á föstudaginn skildu öll sín gögn eftir og voru bara að fara á skólasetningu á mánudegi. Þeir bara fengu það símtal að þeir væru komnir í sóttkví og mættu sig ekki hreyfa,“ sagði Helgi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Reykjavík Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira