Fótbolti

Sjáðu öll mörkin úr Meistara­deildar­leikjum kvöldsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atalanta og Leipzig eru komin áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigra á Valencia og Tottenham.

Atalanta var 4-1 yfir eftir fyrri leikinn gegn Valencia en leikur liðanna í kvöld endaði með 4-3 sigri Atalanta. Josip Ilicic skoraði öll fjögur mörk Atalanta á meðan Kevin Gameiro og Fernan Torres sáu um markaskorunina hjá Valencia.

Klippa: Leipzig - Atalanta 3-4


Í Þýskalandi sá Marcel Sabitzer um að afgreiða Tottenham. Leipzig vann fyrri leikinn 1-0 og leik kvöldsins 3-0 en sem áður segir, átti Marcel stóran þátt í að afgreiða Tottenham. Hann skoraði tvö mörk í kvöld og Emil Forsberg það þriðja.

Mörk Marcel komu á ellefu mínútna kafla í fyrri hálfleik, fyrra markið á tíundu mínútu og það síðara á 21., en Forsberg gerði þriðja markið átta mínútum fyrir leikslok.

Mörkin úr leiknum má sjá í sjónvarpsglugganum efst í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×