Flugfélagið sendi eftirfarandi tölvupóst á starfsmenn í morgun:
Eins og öllum er kunnugt ríkja nú fordæmalausar aðstæður í heiminum sem hafa veruleg áhrif á eftirspurn eftir flugi og ferðalögum. Okkar félag er þar engin undantekning og við verðum að bregðast við með því að minnka flugframboð félagsins a.m.k. tímabundið.Bogi sagði í aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu, nýkominn af fundi með ráðherrum í Stjórnarráðshúsinu, að það væri viðbúið að félagið myndi þurfa að grípa til ráðstafana sem þessara vegna stöðunnar sem upp er komin. Hann sagði til að mynda í samtali við Reykjavík síðdegis á þriðjudag að líklega yrði ekki hjá sársaukafullum aðgerðum komist.
Minni framleiðsla kallar á færri starfsmenn og nauðsynlegt er að leita allra leiða til að lækka kostnað félagsins og bregðast þar með við lækkun tekna.
Í þessu samhengi viljum við biðja alla starfsmenn sem sjá tækifæri í og hafa áhuga á að taka launalaust leyfi næstu mánuði, eru á leið (vilja lengja) foreldraorlof eða eru tilbúnir til að lækka starfshlutfall sitt að ræða við sinn yfirmann fyrir hádegi á föstudag og skoða möguleika.
„Við erum að vinna þessar sviðsmyndir, teikna upp áhrifin á okkur og hvernig við getum brugðist við. Það er ljóst að við verðum að taka verulega á í okkar rekstri,“ segir Bogi.

Engu að síður er ljóst að ferðabannið muni hafa mikil áhrif á starfsemi Icelandair næstu daga og vikur. Staðan verði reglulega endurmetin eftir því sem hlutirnir skýrast.
Ekki ætlunin að fá ríkisaðstoð
Aðspurður hvort Icelandair muni óska þess að ríkið hlaupi undir bagga með flugfélaginu segir Bogi það ekki standa til. „Við vonumst ekki til þess, við ætlum að komast í gegnum þetta og það er okkar verkefni þessa dagana.“ Þannig hefur ekki verið rætt, að sögn Boga, að afskrá Icelandair af hlutabréfamarkaði meðan þetta ástand varir.Aðspurður um hver réttindi farþega sem kemst ekki til Bandaríkjanna eru á þessari stundu segir Bogi að þetta sé ekki eitthvað sem Icelandair hefur stjórn á. „Þetta hefur verið þannig hjá okkur og öðrum flugfélögum ef að farþegi hefur ekki heimild til þess að fljúga til ákveðins lands og fær ekki landvistarleyfi þá er það ekki flugfélagsins.“