Veður

Spáð all­hvassri suð­vestan­átt norðan­til og austan Ör­æfa

Atli Ísleifsson skrifar
Bjart en viða mikill vindur, segir í kortum Veðurstofunnar.
Bjart en viða mikill vindur, segir í kortum Veðurstofunnar. Veðurstofan

Veðurstofan spáir suðvestanátt þar sem búast má við henni allhvassri víða norðantil á landinu sem og á Suðausturlandi, austan Öræfa. Þar séu líkur á hviðum yfir 25 metra á sekúndu og eru allir þeir sem eru á ferðinni með tjaldvagna eða fellihýsi hvattir til að hafa varann á.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að suðvestantil og á Austurlandi sé öllu hægari vindur og meinlaus.

„Víðast hvar skín sól í heiði, en þykknar upp um sunnanvert landið seint í dag. Hlýindin sem hafa verið eystra halda áfram, en í dag verður hitinn líklega mestur á Héraði, um 22 til 23 stig. Vestantil á landinu fer hann þó væntanlega ekki langt yfir 15 stig.

Næstu daga er útlit fyrir að vinda lægi nokkuð og vætutíðinni sem verið hefur undanfarið sloti. Þeim austlendingum sem gott þykir að vera í hita skyldu njóta hans til hins ítrasta á meðan færi gefst, vegna þess að á þriðjudaginn er útlit fyrir að norðaustanátt komi í stað þeirrar suðvestlægu og við það kólnar tilfinnanlega, sérstaklega um austanvert landið,“ segir í færslu veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Suðlæg átt 5-10, rigning eða súld með köflum og hiti 10 til 16 stig um vestarvert landið, en hæg breytileg átt og léttskýjað eystra, og hiti 16 til 23 stig þar.

Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og yfirleitt bjart, en suðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum við suðvesturströndina. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðurlandi eystra.

Á mánudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og þurrt að kalla, en bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 12 til 19 stig, hlýjast á Austur- og Vesturlandi.

Á þriðjudag og miðvikudag: Þykknar upp í norðaustlægri átt með lítilsháttar vætu. Kólnar í veðri.

Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustanátt. Skýjað austantil, en bjart að vestanverðu og svalt í veðri, einkum norðan heiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×