Aftur gýs Sinabung Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. ágúst 2020 11:16 Sinabung hefur reglulega látið á sér kræla undanfarinn áratug. vísir/ap
Fjallið Sinabung á Súmötru hefur gosið tvívegis á síðastliðnum þremur dögum, nú síðast í morgun. Töluverð eldsumbrot og virkni hafa verið í fjallinu í rúmt ár og hafa stjórnvöld í Indónesíu varað íbúa og gesti svæðisins við mögulegri hraunelfi. Talið er að gosmökkurinn sem Sinabung gaf frá sér í morgun hafi stigið fimm kílómetra upp til himins og segja sjónarvottar að umbrotunum hafi fylgt gríðarlegur hávaði. Einn sjónarvottur segir þannig í samtali við Reuters að hávaðinn hafi varað í um 30 sekúndur og minnt á öfluga þrumu. Íbúum svæðisins hefur verið ráðlagt að halda sig í um þriggja kílómetra fjarlægð frá fjallinu, sem stendur á norðanverðri Súmötru. Að sama skapi hafa þeir verið hvattir til að bera grímur til að minnka mögulega hættu af öskufalli. Engin slys hafa orðið á fólki að sögn þarlendra yfirvalda og flugsamgöngur eru enn með nokkuð eðlilegum hætti. Þrátt fyrir að mikil eldvirkni sé í kringum Sinabung hafði það verið í dvala öldum saman áður en það gaus aftur árið 2010. Síðan þá hefur fjallið reglulega látið á sér kræla, ekki síst á liðnu ári. Þannig gaus það síðast á laugardag áður en það gaus aftur í morgun. Gosin eru alla jafna stutt en þó öflug öskugos.
Indónesía Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira