Leeds í afar vænlegri stöðu eftir stórsigur á Stoke | Sjáðu öll mörkin Ísak Hallmundarson skrifar 9. júlí 2020 18:15 Patrick Bamford fagnar marki. getty/George Wood Leeds United stigu risaskref í átt að sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð með 5-0 sigri á Stoke City í dag. Mateusz Klich kom Leeds yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og braut þar með ísinn fyrir það sem koma skildi. Strax í upphafi seinni hálfleiks, á 47. mínútu, tvöfaldaði Helder Costa forystuna eftir stoðsendingu frá Stuart Dallas. Fyrirliðinn Liam Cooper gerði síðan þriðja mark Leeds á 57. mínútu, stöngin inn eftir sendingu Pablo Hernandez. Hernandez var síðan sjálfur á ferðinni á 72. mínútu þegar hann skoraði með laglegu skoti fyrir utan teig og kom Leeds í 4-0. Patrick Bamford setti síðan kirsuberið á toppinn þegar hann skoraði fimmta mark Leeds í uppbótartíma, en boltinn hafði tvisvar viðkomu í stöngina áður en hann söng í netinu. Með sigrinum fer Leeds upp í 81 stig, sem er sex stigum meira en Brentford sem situr í þriðja sæti, en annað sæti og ofar veitir þátttökurétt í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Aðeins fjórar umferðir eru eftir af þessu tímabili og því þarf Leeds að vinna tvo af síðustu fjórum til að fara upp. Stoke er á meðan í bullandi fallhættu í 21. sæti, stigi fyrir ofan fallsæti. Hér að neðan má sjá öll mörkin úr leiknum. Klippa: Leeds 5-0 Stoke Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti