Markalaust í yfir hundrað mínútna leik Ísak Hallmundarson skrifar 9. júlí 2020 19:05 Tottenham náði ekki að skora á rúmum hundrað mínútum í dag. vísir/getty Tottenham gerði markalaust jafntefli við Bournemouth í dag en leiktíminn fór yfir hundrað mínútur. Liðið situr í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fer ekki í sögubækurnar sem sá skemmtilegasti en það var ekki mikið að frétta í leiknum. Bournemouth - Tottenham fer líklega í sögubækurnar sem endaþarmur Enska Boltans! Það ættu allir í heiminum að vera að gera eh annað en horfa á þetta— Styrmir Sigurðsson (@StySig) July 9, 2020 Á lokamínútu venjulegs leiktíma skoraði Callum Wilson fyrir Bournemouth en markið var dæmt af vegna hendi í aðdraganda marksins. Heilum tólf mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en hvorugt liðið náði að nýta sér það. Tottenham er í níunda sæti deildarinnar en Bournemouth í 18. sæti, fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti