City þarf ekki að leita langt eftir arftaka Sane Ísak Hallmundarson skrifar 4. júlí 2020 12:30 Manchester City fagnar Englandsmeistaratitlinum árið 2019. Þeir ætla væntanlega að gera atlögu að honum strax aftur á næsta tímabili. getty/Michael Regan
Manchester City seldi Leroy Sane á dögunum til stórveldisins Bayern Munchen í Þýskalandi. Einhverjir hafa eflaust velt fyrir sér hvort City muni kaupa einhvern til að fylla skarð hans, en nú beinist athyglin að hinum unga Jayden Braaf sem leikur með unglingaliði City. Braaf er 17 ára gamall Hollendingur og hefur nú þegar verið líkt við Jadon Sancho, leikmann Borussia Dortmund. Sancho yfirgaf City á sínum tíma þar sem hann fékk ekki nægilega mörg tækifæri til að spila og ákvað að leita tækifæra út fyrir landssteinanna. Braaf hefur skorað 11 mörk og lagt upp þrjú í 27 leikjum í öllum keppnum með unglingaliðinu á tímabilinu. Þjálfarar í akademíu Man City telja hann geta orðið næstu stjörnu liðsins og segja hann geta orðið 80 milljóna punda leikmaður í framtíðinni. „Ef þú berð hann saman við hvaða vængmann sem er á hans aldri, muntu ekki finna neinn eins góðan og Braaf,“ segir einn þjálfara hans. Braaf hefur verið að æfa með aðalliðinu síðan æfingar hófust aftur eftir þriggja mánaða hlé og nú þegar Sane er farinn er talið líklegt að hann gæti jafnvel spilað með aðalliðinu á þessari leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Fleiri fréttir Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Sjá meira