Salah bað samherjana afsökunar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. desember 2025 09:02 Mohamed Salah sneri aftur í lið Liverpool um síðustu helgi eftir að hafa verið settur út úr hóp fyrir leikinn gegn Inter. getty/Carl Recine Mohamed Salah bað samherja sína hjá Liverpool afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Leeds United fyrir tveimur vikum. Þetta segir Curtis Jones, miðjumaður Rauða hersins.
Salah sat allan tímann á varamannabekknum þegar Liverpool gerði 3-3 jafntefli við Leeds um þarsíðustu helgi. Eftir leikinn fór Egyptinn í viðtal og kvartaði yfir slæmri meðferð hjá Liverpool, sagðist hafa verið gerður að blóraböggli vegna slæms gengis liðsins, sér hafi verið fleygt undir rútuna og að samband hans og Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, væri brostið. Salah var ekki í leikmannahópi Liverpool gegn Inter í Meistaradeild Evrópu en sneri aftur í 2-0 sigri á Brighton um síðustu helgi. Jones segir að Salah hafi beðið liðsfélaga sína afsökunar á upphlaupi sínu eftir leikinn gegn Leeds. „Mo er sinn eigin maður. Hann getur sagt það sem hann vill. Hann bað okkur afsökunar og sagði: Ef ég hef haft áhrif á einhvern og ykkur líður einhvern veginn biðst ég afsökunar. Það lýsir því hvernig maður hann er,“ sagði Jones. „Þetta er líklega bara hluti af því að vera sigurvegari og hann verður ekki sá síðasti sem gerir þetta. Ég veit að það eru leiðir sem þú getur farið að hlutunum en ég held að það sé meira vandamál ef einhver er sáttur við að vera á bekknum og vill ekki spila.“ Jones erfir ummælin ekki við Salah. „Þegar við, ég þar með talinn, höfum verið reiðir hefur það alltaf komið frá góðum stað. Á þessu augnabliki hefur þetta kannski ekki komið rétt út en þetta hefur aldrei haft áhrif á hópinn, starfsliðið, stjórann eða nokkurn slíkan. Við erum komnir yfir þetta og núna erum við farnir að ná vel saman sem lið, spila vel og vinna leiki,“ sagði Jones. Salah er farinn í Afríkukeppnina sem fer fram í Marokkó. Hún hefst á morgun og lýkur 18. janúar. Egyptaland er í riðli með Suður-Afríku, Angóla og Simbabve. Liverpool sækir Tottenham heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag Sjá meira